Fréttir

Áfram mælist landris á Svartsengissvæðinu
Frá Svartsengi.
Miðvikudagur 30. september 2026 kl. 17:43

Áfram mælist landris á Svartsengissvæðinu

Grindavík er áfram metin í töluverðri hættu og Svartsengi í nokkurri hættu í nýju hættumati Veðurstofu Íslands.

Aflögunarmælingar sýna áfram landris á Svartsengissvæðinu. Á undanförnum þremur mánuðum hefur landris mælst um það bil fjórir sentimetrar og hefur verið nokkuð stöðugt á tímabilinu.

Landrisið bendir til þess að þrýstingur sé enn að byggjast upp á nokkurra kílómetra dýpi, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

T26__20260720-20260913-InSar

InSAR-myndin hér að ofan sýnir áframhaldandi landris við Svartsengi um 2,5 sm (LOS) á tímabilinu 20. júlí til 13. september 2026. Með InSAR-aðferð eru bornar saman ratsjármyndir úr gervitunglum til að mæla aflögun lands. Svörtu útlínurnar afmarka hraun sem runnið hafa í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni og við Fagradalsfjall.

Myndin er unnin úr gögnum frá TerraSAR-X-gervitunglinu. Þýska geimferðastofnunin (DLR) útvegaði gögnin í gegnum GEO-GSNL-samstarfið með stuðningi CEOS, alþjóðlegs samstarfsvettvangs um rannsóknir og vöktun á jörðinni með gervitunglum.

Skjálftavirkni

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Á síðustu tveimur vikum hafa aðeins fáir skjálftar mælst í kvikuganginum og flestir þeirra verið mjög smáir.

Einnig hefur verið lítil virkni annars staðar á Reykjanesskaga undanfarna daga og vikur.

Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss áfram líklegasta sviðsmyndin

Á meðan landris heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss.

Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Eftir því sem lengra líður frá síðasta atburði eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.

Hættumat uppfært með tilliti til sprunguviðgerða í Grindavík

Nýtt hættumat tekur gildi 30. september. Heildarmat fyrir helstu svæði breytist ekki. Grindavík er áfram metin í töluverðri hættu og Svartsengi í nokkurri hættu.

Hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með hliðsjón af þeim framkvæmdum þar sem fyllt hefur verið upp í sprungur í bænum. Breytingin lækkar reiknað heildarhættustig fyrir Grindavík úr 4,14 í 4,02. Hættuflokkurinn breytist þó ekki og heildarhættan er áfram metin töluverð (appelsínugult).

Hættumat Veðurstofunnar byggir á ýmsum gögnum sem stöðugt eru uppfærð. Í hættumatinu sem kemur út í dag er nú stuðst við ný gögn sem tengjast sprunguviðgerðum innan Grindavíkur sem eru langt komnar. Gögnin koma frá ÍSOR og verkfræðistofunni Eflu sem höfðu umsjón með framkvæmd sprunguviðgerðanna. Samkvæmt áhættumati ber Grindavíkurbær ábyrgð á sprunguviðgerðum. Sprunguviðgerðirnar minnka líkur á hættu vegna „jarðfalls ofan í sprungu“ innan bæjarmarkanna, en hafa engin áhrif á mat á hættu vegna mögulegra sprunguhreyfinga í næsta atburði.

2026-09-30_haettumatskort_VI

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn