Fyrirtæki á Suðurnesjum sjá fram á fjölgun starfa en skortir hæft fólk
Rúmlega þriðjungur fyrirtækja á Suðurnesjum sem svöruðu fyrirtækjakönnun landshlutanna árið 2025 gerir ráð fyrir að fjölga starfsfólki. Á sama tíma segist álíka stór hópur skorta starfsfólk með tiltekna færni. Þetta kom fram í kynningu Heklunnar á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Alls svöruðu 82 fyrirtæki á Suðurnesjum könnuninni. Af þeim gera 36% ráð fyrir fjölgun starfsfólks. Samkvæmt kynningunni er það hæsta hlutfall landshluta. Þá segjast 35% fyrirtækjanna vanta fólk með ákveðna færni og um 30% starfsfólk með tiltekna menntun.
Iðnmenntun áberandi í svörunum
Þörf fyrir iðnmenntað starfsfólk kemur sérstaklega fram í kynningunni. Flugvirkjun, matreiðsla, verkfræði og upplýsingatækni eru einnig nefnd sem dæmi um menntun og þekkingu sem fyrirtæki kalla eftir. Auk þess nefna fyrirtækin meðal annars starfsreynslu, verkvit, tungumálakunnáttu og samskiptafærni.
Heklan telur niðurstöðurnar sýna að jákvæðum vaxtarhorfum þurfi að fylgja markviss uppbygging mannauðs á Suðurnesjum. Fyrirtækjakönnunin er gerð annað hvert ár og er henni ætlað að varpa ljósi á meðal annars rekstrarhorfur, fjárfestingaráform og þörf fyrirtækja fyrir starfsfólk.
53 milljónum úthlutað til verkefna
Í kynningunni kom jafnframt fram að Uppbyggingarsjóður Suðurnesja úthlutaði um 53 milljónum króna til 43 verkefna árið 2026. Alls bárust 64 umsóknir þar sem sótt var um rúmlega 160 milljónir króna. Af úthlutuninni fóru 22,3 milljónir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, 27 milljónir til menningar- og samfélagsverkefna og 3,8 milljónir í stofn- og rekstrarstyrki.
Heklan vinnur að atvinnuþróun á Suðurnesjum með ráðgjöf til frumkvöðla og fyrirtækja, stuðningi við nýsköpun og samstarfi við sveitarfélög og aðra aðila á svæðinu.






