Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Ný heimasíða Reykjanesbæjar komin í loftið
Fimmtudagur 1. október 2026 kl. 10:43

Ný heimasíða Reykjanesbæjar komin í loftið

Nýr þjónustuvefur Reykjanesbæjar hefur verið opnaður á reykjanesbaer.is. Vefurinn leysir af hólmi vef sem á rætur að rekja til ársins 2016 og markar því stórt skref í stafrænni þjónustu sveitarfélagsins.

Vinna við nýja vefinn hefur staðið yfir í meira en ár og var hann unninn í samstarfi Reykjanesbæjar og Hugsmiðjunnar. Frá upphafi hefur áherslan verið á að horfa á vefinn út frá þörfum notenda og gera íbúum auðveldara að finna upplýsingar og þjónustu sveitarfélagsins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Þjónustan í forgrunni

Ein stærsta breytingin felst í uppbyggingu vefsins. Í stað þess að endurspegla skipulag stjórnsýslunnar og skipta efni upp eftir sviðum sveitarfélagsins er nú í meira mæli horft á þjónustuna frá sjónarhóli notandans.

Leitin gegnir einnig mun stærra hlutverki á nýja vefnum. Hún er áberandi og hefur verið endurbætt til muna. Með því að nota leitina er einfalt og fljótlegt fyrir notendur að finna upplýsingar um þjónustu Reykjanesbæjar.

„Við vildum færa fókusinn meira yfir á alla þá sem nota þjónustuna okkar. Íbúar eiga ekki að þurfa að þekkja stjórnskipulag Reykjanesbæjar til að finna það sem þeir leita að. Þetta hefur verið leiðarljósið í verkefninu, að gera upplýsingarnar aðgengilegri, einfalda leiðina að þjónustunni og byggja upp vef sem við getum haldið áfram að þróa út frá þörfum notenda,“ segir Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs Reykjanesbæjar.

Nýtt viðburðadagatal

Meðal nýjunga á vefnum er nýtt viðburðadagatal þar sem hægt verður að nálgast á einum stað upplýsingar um viðburði á vegum Reykjanesbæjar. Við opnun vefsins verður meðal annars hægt að kynna sér dagskrá Heilsuviku Reykjanesbæjar sem hefst 5. október auk fjölmargra viðburða sem eru á döfinni á næstu vikum og mánuðum.

Fleiri nýjungar eru jafnframt í vinnslu. Meðal annars er unnið að spjallmenni sem ætlað er að auðvelda notendum enn frekar að finna upplýsingar og verður það tekið í notkun síðar.

Rúmlega árs vinna að baki

Undirbúningur og þróun nýja vefsins hefur staðið yfir í meira en ár. Það eru ótal mörg skref falin í því að endurhanna og uppfæra heilan þjónustuvef hjá sveitarfélagi. Í ferlinu var meðal annars unnið að greiningu á notkun, rætt við lykilnotendur og hagsmunaaðila, mótað nýtt veftré og þjónustuflæði, efni yfirfarið og endurskipulagt auk hönnunarvinnu og forritunar. Áhersla var lögð á aðgengi, einfaldleika og bætta notendaupplifun.

Verkefnahópur innan Reykjanesbæjar hefur leitt verkefnið í samstarfi við Hugsmiðjuna. Í honum eru Aron Guðmundsson vefstjóri, Halldóra G. Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, Kristrún Björgvinsdóttir markaðs- og kynningarfulltrúi og Áslaug Guðjónsdóttir deildarstjóri þjónustu og þróunar. Fjöldi annarra starfsmanna sveitarfélagsins hefur jafnframt komið að yfirlestri, efnisvinnu og prófunum á vefnum.

Vefurinn áfram í þróun

Opnun nýja vefsins er jafnframt fyrsti áfanginn í stærri vegferð. Reykjanesbaer.is er fyrsta vefsvæði sveitarfélagsins sem færist yfir í nýtt vefumhverfi og stefnt er að því að fleiri vefir Reykjanesbæjar fylgi í kjölfarið. Með sameiginlegu vefumhverfi er meðal annars stefnt að aukinni samræmingu, skilvirkari umsýslu og betri yfirsýn yfir vefsvæði sveitarfélagsins.

Vefurinn er heldur ekki hugsaður sem fullklárað verkefni við opnun. Nýja vefumsjónarkerfið býður upp á aukinn sveigjanleika og tækifæri til þróunar í takt við strauma og stefnur. Markmiðið er að vefurinn þróist áfram í takt við þarfir íbúa og þá þjónustu sem Reykjanesbær veitir.

Íbúar eru hvattir til að senda inn ábendingar tengdar vefnum, tillögur að úrbótum eða annað sem þeir telja vanta á þjónustuvefinn og hjálpa þannig til við að bæta þjónustu til íbúa.

Bílakjarninn
Bílakjarninn