Gert ráð fyrir fjárfestingum fyrir 14 milljarða á ári næsta áratuginn
Stefnt að 12 milljónum farþega um Keflavíkurflugvöll árið 2035. „Það er mikil orka að leysast úr læðingi á Suðurnesjum“, segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
„Við erum að skapa flugtengingar, ekki bara flugferðir,“ sagði Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í erindi sínu á ráðstefnu á Suðurnesjum þar sem hann fjallaði um mikilvægi Keflavíkurflugvallar fyrir atvinnulíf, verðmætasköpun og hagvöxt. Hann sagði langtímaáætlanir gera ráð fyrir eftirspurn eftir flugi fyrir um 12 milljónir farþega árið 2035 og að drög að uppbyggingaráætlun næstu tíu ára gerðu ráð fyrir fjárfestingum upp á meira en 14 milljarða króna á ári að meðaltali.
Sveinbjörn sagði mikla orku vera að leysast úr læðingi á Suðurnesjum og mikilvægt væri að íbúar og fyrirtæki gerðu sér grein fyrir þeim tækifærum sem svæðið hefði upp á að bjóða.
„Ég hef fundið það síðustu mánuði og misseri að það er einhvern veginn meiri orka að leysast úr læðingi hérna á Suðurnesjunum,“ sagði hann og bætti við að fólki væri tamt að aka í gegnum svæðið á leið til útlanda án þess að staldra við og skoða þá miklu starfsemi sem þar færi fram.
Horfa til ársins 2035 þrátt fyrir áföll
Sveinbjörn sagði að Isavia þyrfti stöðugt að horfa til framtíðar þrátt fyrir sveiflur í flugrekstri. Félagið hefði sett sér þá framtíðarsýn að tengja heiminn í gegnum Ísland og leggja áherslu á hlutverk Keflavíkurflugvallar sem alþjóðlegrar tengistöðvar.
„Það er gríðarlega mikilvægt að við munum eftir því að við erum að reka tengistöð á Keflavíkurflugvelli því það er tengistöðin sem býr til flugtengingar.“
Hann sagði að áætlanir um þróun flugvallarins næðu til ársins 2035 og að hagfræðilegar greiningar bentu til þess að þá gæti verið eftirspurn eftir flugi til, frá og um Keflavíkurflugvöll sem samsvaraði um 12 milljónum farþega.
Sveinbjörn rifjaði upp þær miklu breytingar sem orðið hefðu í flugrekstri á undanförnum árum, meðal annars fall WOW air, heimsfaraldurinn og nú síðast fall Play.
„Við þurfum að byggja upp það hæfi hjá okkur til að geta brugðist við öllum þessum áföllum og áskorunum án þess að missa sjónar af langtímatækifærinu,“ sagði hann.
Langtímasýnin væri lykillinn að því að tryggja arðsemi félagsins og skapa verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Til þess þyrfti að fjölga farþegum og styrkja flugtengingar Íslands við umheiminn.
Tíu milljarðar til iðnfyrirtækja og 100 þúsund vinnustundir á ári
Sveinbjörn lagði sérstaka áherslu á þau miklu efnahagslegu áhrif sem rekstur og uppbygging Keflavíkurflugvallar hefði á nærsamfélagið.
Hann nefndi rammasamning um þjónustu iðnaðarmanna sem Isavia bauð út árið 2021. Fjölmörg fyrirtæki á Suðurnesjum væru aðilar að samningnum og árlega keypti Isavia um 100 þúsund vinnustundir á grundvelli hans, sem jafngilti um 51 stöðugildi.
„Frá 2021 er heildarverðmæti þessa samnings inn í þetta samfélag um tíu milljarðar króna,“ sagði Sveinbjörn.
Hann lagði þó áherslu á að ávinningurinn væri gagnkvæmur. Flugvöllurinn væri háður því að hafa aðgang að öflugum verktökum og hæfu starfsfólki í nærsamfélaginu.
„Það að hafa aðgang að þessu hæfi í nærsamfélaginu, það er ómetanlegt fyrir okkur.“
Sveinbjörn sagði að þetta hefði meðal annars komið skýrt í ljós þegar flugumferð tók hratt við sér eftir heimsfaraldurinn. Þá hefði skipt sköpum að geta kallað til reynslumikið starfsfólk sem þekkti starfsemi flugvallarins og þyrfti minni þjálfun en nýliðar.
Fjárfestingar fyrir meira en 14 milljarða á ári
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár og sagði Sveinbjörn að fjárfestingar síðustu tíu ára næmu um 100 milljörðum króna. Þar af hefðu tæplega 60 milljarðar farið í framkvæmdir á síðustu fjórum árum.
Hann sagði jafnframt að umfangsmikil uppbygging væri fram undan.
„Drög að uppbyggingaráætlun næstu tíu ára gefa til kynna að við séum að fara að fjárfesta fyrir einhvers staðar að meðaltali 14 milljarða plús á ári. Þannig að þetta heldur bara áfram.“
Sveinbjörn sagði að framkvæmdirnar sköpuðu fjölmörg störf, bæði innan flugvallarsvæðisins og utan þess. Samkvæmt reynslu Isavia ættu um 50 til 60% starfa sem tengdust framkvæmdunum uppruna sinn á Suðurnesjum.
Hann rifjaði einnig upp ákvörðun stjórnvalda um að auka hlutafé Isavia í heimsfaraldrinum til þess að hægt væri að hefja fjárfestingar á ný.
Þá hefði atvinnuleysi á Suðurnesjum verið mikið og framkvæmdir á flugvellinum því ekki aðeins mikilvægar fyrir framtíð flugvallarins heldur einnig til að skapa störf á svæðinu.
„Fyrir hann var þetta líka tæki til þess að draga úr atvinnuleysi á Suðurnesjunum,“ sagði Sveinbjörn um ákvörðun þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, og lýsti henni sem gríðarlega mikilvægri.
Hvert þúsund farþega skapar um eitt starf
Sveinbjörn vísaði til skýrslu sem Isavia gaf út árið 2016 og byggði meðal annars á erlendum rannsóknum. Þar kom fram að fyrir hverja þúsund farþega sem færu um flugvöll yrði að jafnaði til um eitt starf í flugvallarsamfélaginu.
Þetta sýndi hversu mikil áhrif breytingar á farþegafjölda hefðu á atvinnulíf Suðurnesja.
„Þegar okkur tekst vel til að búa til farþegafjölgun, þá verða bara til ný og ný störf. Á sama tíma, þegar það verður samdráttur, þá hverfa störfin.“
Hann sagði að flugvallarsamfélagið væri mun stærra en Isavia eitt og sér. Starfsfólk félagsins væri innan við 20% af öllum þeim sem störfuðu á Keflavíkurflugvelli.
Flugtengingar undirstaða hagvaxtar
Í erindi sínu fjallaði Sveinbjörn einnig um tengsl flugsamgangna og hagvaxtar. Hann vísaði til evrópskrar rannsóknar á vegum Alþjóðasamtaka flugvalla í Evrópu sem benti til þess að 10% fjölgun beinna flugtenginga á stærsta flugvelli lands tengdist 0,5% aukningu landsframleiðslu á mann.
Sveinbjörn taldi að áhrifin gætu verið enn meiri á Íslandi vegna legu landsins og þess að hér væri rekin alþjóðleg tengistöð.
„Við erum eyríki. Við höfum ekki lestarsamgöngur eins og mörg eða flest af löndum á meginlandi Evrópu hafa til þess að flytja vörur og fólk á milli landa.“
Hann sagði að oft væri horft á flugtengingar fyrst og fremst út frá ferðaþjónustu, en áhrif þeirra væru mun víðtækari. Þær auðvelduðu alþjóðaviðskipti, bættu samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og opnuðu aðgang að menntun, menningu og erlendum mörkuðum.
„Það sem Keflavíkurflugvöllur gerir er að hann einfaldlega stækkar þennan litla markað,“ sagði Sveinbjörn og vísaði til þess hversu fámennt Ísland væri í alþjóðlegum samanburði.
Hann nefndi jafnframt að fjöldi áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli hefði verið á bilinu 70 til 80 yfir vetrartímann og 80 til 90 yfir sumartímann á árunum eftir heimsfaraldurinn. Slíkt væri óvenjulegt fyrir jafn fámennan markað og Ísland og byggðist að stórum hluta á tengifarþegum.
„Iceland is in the middle of everywhere“
Í lok erindisins vék Sveinbjörn aftur að Suðurnesjum og þeirri jákvæðu þróun sem hann sagðist finna fyrir í umræðu um svæðið.
Hann sagði sögu af því þegar hann hefði áður gert að gamni sínu við erlenda gesti að Ísland væri staðsett „in the middle of nowhere“, eða úti í miðri óbyggð.
Fyrir um þremur árum hefði erlendur viðmælandi hins vegar leiðrétt hann.
„Nei, þetta er rangt hjá þér. Iceland is in the middle of everywhere.“
Sveinbjörn sagði þessi orð lýsa vel þeim tækifærum sem fælust í landfræðilegri legu Íslands og hlutverki Keflavíkurflugvallar sem tengistöðvar milli heimsálfa.
„Við höfum þá tækifæri sem eyþjóð að vera á þessum stað að tengja Ísland við þessa alþjóðlegu markaði,“ sagði Sveinbjörn.
Með öflugum flugtengingum væri lagður grunnur að hagvexti, velsæld og áframhaldandi þróun íslensks samfélags.

Fjölmenni var á afmælisráðstefnu Kadeco.








