Milljarðauppbygging og stór tækifæri á Suðurnesjum
Mikil bjartsýni í framtíð Suðurnesja í pallborðsumræðum
Uppbygging gagnavera, landeldis, ferðaþjónustu og orkuinnviða á Suðurnesjum var í brennidepli í líflegum pallborðsumræðum á 20 ára afmælisráðstefnu Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, í Hljómahöll. Þar kom meðal annars fram að Verne undirbýr 120 megavatta gagnaver, Samherji fiskeldi er kominn í gang með byggingu 36 þúsund tonna laxaframleiðslu á Reykjanesi og Bláa lónið vinnur að frekari uppbyggingu í Svartsengi. Þátttakendur voru sammála um að mikil tækifæri fælust í því að tengja saman ólíkar atvinnugreinar og nýta betur auðlindir svæðisins.
Í pallborðinu sátu Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, Halla Hrund Logadóttir alþingismaður, Páll Erland, forstjóri HS Veitna, Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, og Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne. Bergur Ebbi stýrði umræðunum.
Kísildalur norðursins að verða að veruleika
Halla Hrund Logadóttir rifjaði upp hugmyndir sínar um Suðurnesin sem „Kísildal norðursins“ og sagði að þróunin á svæðinu sýndi að sú framtíðarsýn væri að mörgu leyti þegar farin að verða að veruleika.
Hún sagði að einstakt samspil orkuauðlinda, innviða, nýsköpunar og öflugra fyrirtækja skapaði forsendur fyrir frekari vexti.
„Við erum að tala um hitaveituna, við erum að tala um allt sem hefur verið byggt ofan á hana, sama hvort það er Bláa lónið eða gagnaverin eða allt annað sem hefur gert það að verkum að við erum á þessum stað í dag.“
Halla sagði mikilvægt að halda áfram að byggja ofan á þá starfsemi sem þegar væri til staðar. Þar væru meðal annars tækifæri í fullnýtingu hráefna, orku og hliðarafurða atvinnulífsins.
„Ég held við séum í dauðafæri að sækja þessa sýn í raun og veru,“ sagði hún og lagði áherslu á mikilvægi menntunar, nýsköpunar og öflugra innviða.
Hún nefndi meðal annars fyrirtækið Kerecis sem dæmi um hvernig hægt væri að skapa verðmæti úr hráefni sem áður hefði verið lítils metið.
Verne undirbýr 120 megavatta gagnaver
Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne, sagði gagnaveraiðnaðinn vera kominn inn í mikið vaxtarskeið, meðal annars vegna örrar þróunar gervigreindar.
Verne hefði byggt upp starfsemi sína á Suðurnesjum frá árinu 2008 og hygðist halda áfram að fjárfesta á svæðinu.
„Við erum að fara af stað núna með líklega stærsta verkefni í sögu fyrirtækisins, 120 megavatta gagnaver, sem er sirka þreföldun á okkar núverandi stærð,“ sagði Styrmir.
Hann sagði fyrirtækið hafa sterkar rætur á svæðinu og mikinn áhuga á áframhaldandi uppbyggingu.
„Svæði fyrir gagnaver er hér og hér viljum við vera. Hér erum við með ræturnar.“
Styrmir sagði jafnframt að tækifæri fælust í að nýta glatvarma frá gagnaverum til annarrar atvinnustarfsemi. Verne hefði um árabil skoðað slíka möguleika og nú væri áhugi á þeim að aukast.
„Við erum búin að vera í fjölmörgum samtölum bara í þessari viku við ólíka aðila sem eru með hugmyndir uppi um nýtingu á þessum varma.“
Slík starfsemi þyrfti að vera í nágrenni gagnaveranna þar sem erfitt væri að flytja varmann langar leiðir. Það skapaði sérstök tækifæri fyrir Kadeco og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Styrmir sagði mikinn áhuga vera á framkvæmdum fyrirtækisins. Á kynningarfundi sem Verne hélt í Hljómahöll fyrir rúmum mánuði hefðu mætt 250 manns frá 115 fyrirtækjum.
„Svarið sem við fáum frá mjög mörgum sem við erum að tala við er að þeir tala um að Reykjanes sé heitt. Það er rosalega mikið af spennandi verkefnum í gangi.“
Samherji stefnir að 36 þúsund tonna laxaframleiðslu
Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, sagði að uppbygging landeldisstöðvar fyrirtækisins á Reykjanesi gengi samkvæmt áætlun.
Fyrirtækið hefði frá upphafi stefnt að því að byggja stöðina í þremur áföngum með framleiðslugetu upp á 36 þúsund tonn af laxi á ári.
„Við erum búin að reisa 18 af 22 körunum í fyrsta áfanga sem eiga að framleiða tíu þúsund tonn,“ sagði Jón Kjartan.
Hann sagði stefnt að því að setja fyrsta fiskinn í stöðina næsta vor og hefja slátrun um ári síðar.
„Við erum bara á okkar vegi og hlaupandi eins og brjálæðingar.“
Jón Kjartan sagði aðgang að orku og auðlindum hafa ráðið miklu um staðarvalið. Þar skipti samningur við HS Orku um nýtingu á heitum vökva úr orkuvinnslu fyrirtækisins sköpum.
Hann sagði um 280 megavött af varmaorku standa að baki þeirri nýtingu sem fyrirhuguð væri.
„Fyrir mér er það stærsta umhverfisverkefni á Íslandi, að við tökum 280 megavött og breytum þeim í fiskiprótín sem við seljum til útlanda.“
Hann sagði jafnframt að Samherji fiskeldi liti á verkefnið sem langtímafjárfestingu.
„Við ætlum að vera í 100 ár,“ sagði Jón Kjartan og lagði áherslu á að fyrirtækið hygðist verða virkur þátttakandi í samfélaginu á Suðurnesjum.
Bláa lónið stækkar og endurhannar upplifun gesta
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, sagði mikla uppbyggingu vera fram undan hjá fyrirtækinu, bæði á Suðurnesjum og annars staðar á landinu.
Hún sagði sögu Bláa lónsins sýna vel hvernig hægt væri að umbreyta því sem áður hefði verið talið úrgangur eða hliðarafurð í verðmæta auðlind.
„Þetta er í rauninni hrakstraumur sem breytt er í auðlind.“
Sigríður sagði að metnaður, rannsóknir, vísindi og fjárfestingar hefðu verið lykilþættir í uppbyggingu fyrirtækisins.
Hún greindi frá því að nú væri unnið að endurhönnun og uppbyggingu á upplifun gesta í Bláa lóninu sjálfu.
„Við erum líka bara núna þessa dagana að endurhanna og byggja upp alla vegferð viðskiptavina í Bláa lóninu sjálfu.“
Þá hefði verið hönnuð stækkun á Silica-hótelinu í Svartsengi. Hún sagði nýtingu hótelsins hafa verið 94% að meðaltali á síðasta ári.
„Þetta er örugglega eitt af fáum hótelum á Íslandi sem er uppselt allt árið,“ sagði Sigríður.
Hún lagði jafnframt áherslu á að Ísland ætti ekki að stefna að fjöldaferðamennsku heldur nýta sér sérstöðu sína í heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu.
„Við verðum aldrei massatúrismaland,“ sagði hún og nefndi jarðhitann, hreina orku, vatnið, loftið og öryggi sem mikilvæga styrkleika Íslands.
HS Veitur þurfa að byggja innviði til næstu 50 ára
Páll Erland, forstjóri HS Veitna, sagði að framsýni fyrri kynslóða við uppbyggingu Hitaveitu Suðurnesja hefði lagt grunninn að þeirri atvinnustarfsemi sem nú væri á svæðinu.
Hann nefndi Albert Albertsson sérstaklega sem einn þeirra frumkvöðla sem hefðu haft mótandi áhrif á þróunina.
„Hann var með plan. Ég held að við höfum nú ekkert endilega þekkt planið en ég held að það sé orðið að veruleika,“ sagði Páll.
Hann sagði að margir þeirra innviða sem byggðir hefðu verið fyrir áratugum nýttust enn í dag, þrátt fyrir mikla fólksfjölgun og aukin umsvif atvinnulífsins.
Nú væri hins vegar komið að því að endurnýja og styrkja hluta kerfanna.
„Það verður líka þá tækifæri og ábyrgð okkar að byggja upp innviði sem duga fyrir alveg næstu 50 ár.“
Páll sagði að við uppbygginguna þyrfti einnig að taka mið af náttúruhamförum og breyttum veðuraðstæðum.
Þekkingin verði eftir á Íslandi
Í umræðunum kom einnig fram að mikilvægt væri að nýta uppbyggingu gagnavera og gervigreindar til að skapa ný fyrirtæki og þekkingarstörf á Íslandi.
Styrmir tók undir mikilvægi þess að gagnaveraiðnaðurinn ætti gott samtal við samfélagið og skýrði betur hvernig starfsemin nýttist almenningi.
Hann sagði að gagnaver notuðu nú um 3,5% af þeirri orku sem framleidd væri á Íslandi en að hlutfallið gæti aukist með áframhaldandi vexti iðnaðarins.
Undir lok umræðnanna var rætt um mikilvægi þess að kynna Suðurnesin betur, ekki aðeins fyrir erlendum fjárfestum heldur einnig Íslendingum sjálfum.
Halla Hrund fékk síðasta orðið og sagði að næstu tuttugu ár gætu orðið tímabil þar sem fyrirtæki á Suðurnesjum og ný starfsemi sem byggði á grunni þeirra myndu vaxa mun meira en fólk gerði sér nú grein fyrir.
Hún sagði eitt stærsta sameiginlega verkefnið vera að tryggja að menntun ungs fólks þróaðist í takt við nýjar atvinnugreinar.
„Við þurfum að passa að hjálpa þessum fyrirtækjum að láta sína sýn virka, innviði og allt svoleiðis,“ sagði Halla Hrund og lagði áherslu á að ungt fólk þyrfti bæði að geta nýtt og skapað tækifæri framtíðarinnar.





