Tvö Suðurnesjaverkefni frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026
Fjórtán fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. Tvö verkefni frá Suðurnesjum voru valin, Kraftý Café og Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus.
Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu.
Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes – SSS)
Uppbygging heilsu- og gufubaðsupplifunar sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu.
Þátttakandi: Unnur Svava Sverrisdóttir.
Kraftý Café (Suðurnes – SSS)
Nýstárlegt kaffihús og upplifun sem efla samfélag og menningarlíf.
Þátttakendur: Alexandra Ósk Laxdal og Inga Hrönn Kristjánsdóttir.
Hraðallinn stendur í sjö vikur og munu teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði á Selfossi þann 6. nóvember.






