Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Íþróttir

Heiða Dís með gull í Rúmeníu
Mánudagur 26. október 2026 kl. 09:41

Heiða Dís með gull í Rúmeníu

Það er búið að vera nóg um að vera hjá Taekwondo-deild Keflavíkur að undanförnu. Mörg mót innanlands og erlendis.

Í september fóru 4 keppendur frá deildinni til Póllands. Allir stóðu sig vel en Heiða Dís Helgadóttir vann til bronsverðlauna á þessu sterka móti.

Í október var fyrsta bikarmót tímabilsins. Keflvíkingar röðuðu þar inn verðlaunum og Heiða var valin kvenkeppandi mótsins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Um helgina var Dracula Open mótið í Rúmeníu og þar voru 6 keppendur frá Keflavík. Keppendurnir börðust vel og var Viktor Berg hársbreidd frá verðlaunum en hann er efnilegur ungur keppandi. Heiða Dís vann til gullverðlauna á mótinu.

Þá var Heiða Dís valin á Evrópumót ungmenna sem haldið verður í nóvember. Eins og staðan er núna er Heiða í 5. sæti styrkleikalista Evrópu fyrir sinn flokk. Þess að auki vann Heiða sér inn rétt til að keppa á Grand Prix Open Final sem er eitt sterkasta unglingamót heims en það mót verður í Bosníu í desember.

Það að keppa á þessum mótum og elta drauminn sinn er kostnaðarsamt og þeir sem vilja hjálpa Heiðu að ná markmiði sínu, að vera á verðlaunapallinum á sterkustu mótum Evrópu, geta lagt henni lið með frjálsum framlögum á eftirfarandi reikning.

Kennitala: 021286-3709

Reikn.nr: 0123-15-112172

Bílakjarninn
Bílakjarninn