Miðflokkurinn í Reykjanesbæ
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ

Aðsent

Veljum fólk, ekki bara flokk
Þriðjudagur 28. apríl 2026 kl. 18:59

Veljum fólk, ekki bara flokk

Í sveitarstjórnarkosningum er munurinn á málefnum flokkanna oft minni en haldið er fram. Þá stendur eftir loforð um eitthvað nýtt og betra eða fólkið sem prýðir listana. Ætlar þú að kjósa um loforð eða hverjum þú treystir til að vera í forystu, taka skynsamar ákvarðanir og vinna af heilindum næstu fjögur árin?

Við sem búum í Reykjanesbæ viljum í grunninn öll svipaða hluti, góða þjónustu, sterkt samfélag og ábyrga fjármálastjórn. Spurningin ætti því að vera einföld: Hverjum treystum við til að leiða það verkefni?

Aðalbros
Aðalbros

Þess vegna skiptir máli að skoða listana vel. Hvaða reynslu, þekkingu og sýn koma þau með að borðinu? Treystir þú þessu fólki til að taka ákvarðanir fyrir Reykjanesbæ?

Á lista Framsóknar er breiður hópur fólks með ólíka sérhæfingu og reynslu ásamt öflugum ungum einstaklingum sem vilja leggja sitt af mörkum til framtíðarinnar. Framsókn hefur verið í forystu síðustu 8 ár og skilað góðum árangri fyrir sveitarfélagið á krefjandi tímum.

Ekki láta slá ryki í augu ykkar af loforðum og skyndiáhuga hjá þeim sem birtast allt í einu korteri fyrir kosningar. Mæta á kappleiki og viðburði en sjást lítið eða ekkert þess á milli. Sveitarstjórnarstörf eru ekki sýning á kosningatíma heldur vinna í þágu sveitarfélagsins allan ársins hring. Það skiptir máli hverjir eru til staðar þegar á reynir, fylgja málum eftir, þekkja samfélagið og eru þátttakendur, ekki bara þegar kastljósið kviknar.

Þegar þú gengur að kjörborðinu hugsaðu um fólkið. Veldu þau sem þú treystir til að vinna verkin, fara vel með skattféð og halda áfram á þeirri vegferð að byggja upp blómlegt sveitarfélag sem við getum verið stolt af.

Nýtum okkur reynsluna og horfum á árangurinn. Setjum x við B á kjördag.

Birgir Már Bragason

Undirritaður er í 4. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar