Skýr stefna og ábyrg forysta fyrir Suðurnesjabæ
Þann 16. maí göngum við til sveitarstjórnarkosninga. Það er mikilvægt að hver og einn nýti atkvæðarétt sinn. Með því að mæta á kjörstað nýtir þú rétt þinn til að hafa áhrif á nær samfélagið og þá stefnu sem sveitarfélagið tekur næstu árin.
Sveitarstjórnarstigið gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi okkar allra. Sveitarfélög fara með ábyrgð á mikilvægum málaflokkum eins og leik- og grunnskólum, skipulagsmálum, umhirðu umhverfis, úthlutun lóða og þjónustu við fatlað fólk. Ákvarðanir sem teknar eru á þessu stigi hafa bein áhrif á lífsgæði íbúa – á heimili, í skólum og í nærumhverfinu.
Suðurnesjabær er í einstakri stöðu á Suðurnesjum. Nálægðin við alþjóðaflugvöllinn, sterkt hafnarsvæði og vaxandi atvinnulíf skapa tækifæri sem fá sveitarfélög búa yfir. En tækifærin nýtast ekki af sjálfu sér – þau krefjast skýrrar sýnar, metnaðar og ákveðinnar forystu.
Við teljum mikilvægt að halda í þann styrk sem felst í smæð sveitarfélagsins. Með því getum við tekið ákvarðanir hratt og brugðist skjótt við þegar tækifæri gefast. Stjórnsýslan á að vera einföld, skilvirk og þjónandi – ekki flókin og seinvirk.
Til að efla atvinnulífið þurfum við að skapa fyrirtækjum góð rekstrarskilyrði. Það felur í sér skýra og skilvirka stjórnsýslu, auk þess sem sveitarfélagið þarf að vera tilbúið með atvinnulóðir svo fyrirtæki geti byggt upp starfsemi sína hér. Skilaboðin eiga að vera skýr, Suðurnesjabær er góður staður til að búa, starfa og fjárfesta í.
Við viljum jafnframt halda álögum í hófi og leita leiða til að lækka kostnað á íbúa, samhliða því að tryggja ábyrgan og hagkvæman rekstur sveitarfélagsins.
Sveitarfélag er ekki aðeins mælt í uppbyggingu lóða og gatna, heldur fyrst og fremst í því hvernig það mætir þörfum fólks á öllum aldri. Við þurfum að horfa heildrænt á samfélagið og byggja upp innviði sem styðja bæði við börn og ungmenni, fjölskyldufólk og eldri borgara. Með markvissri uppbyggingu íþróttamannvirkja sköpum við jákvæðan vettvang fyrir æsku bæjarins, eflum lýðheilsu og styrkjum samfélagsandann. Á sama tíma er mikilvægt að fjölga hentugu húsnæði fyrir eldri borgara svo þeir geti búið áfram í sínu nærumhverfi við góðar aðstæður og styrkt félagstarf þeirra.
Nú er komið að mikilvægri stund. Næstu fjögur ár munu móta framtíð Suðurnesjabæjar.
Við sem störfum í stjórnmálum erum í þjónustu við íbúa. Við erum fulltrúar kjósenda.
Þátttaka í kosningum er lykillinn að öflugu lýðræði.
Látum rödd okkar heyrast og mótum framtíðina saman.
Ég óska eftir þínum stuðningi á kjördag.
Setjum X við B þann 16. maí.
Anton Guðmundsson
Oddviti B-lista Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ








