Landhelgisgæslan 21-28. apríl
Landhelgisgæslan 21-28. apríl

Fréttir

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
Þriðjudagur 28. apríl 2026 kl. 15:04

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi

Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa rúmlega 25 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí en aflögun nemur um 2 cm á mánuði.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir. 

Bylgjuvíxlmynd (InSAR), sem mælir smávægilegar yfirborðsbreytingar með því að bera saman gervihnattamyndir teknar á mismunandi tímum, barst í hús á dögunum. Myndin nær yfir allan Reykjanesskagann og sýnir áfram greinilegt landris við Svartsengi. Engin merki um aflögun sjást annars staðar á skaganum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

 

2026-04-28-bylgjuvixlmynd

Gervitunglamynd sem spannar tímabilið 16. mars - 18. apríl 2026 og sýnir landris við Svartsengi. Hvítu útlínurnar sýna hraunin sem hafa myndast í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni. 

Skjálftavirkni 

Áfram mælist lítil skjálftavirkni við kvikuganginn en virðist þó hafa aukist lítillega síðustu tvær vikur. Flestir skjálftanna eru undir 1 að stærð.  

Hættumat 

Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni og verður hættumatið uppfært ef breytingar verða á virkninni.

2026-03-31_haettumatskort_VI

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar