Miðflokkurinn í Reykjanesbæ
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ

Minningar

Andlát Bryndís Björg Guðmundsdóttir
Miðvikudagur 29. apríl 2026 kl. 11:36

Andlát Bryndís Björg Guðmundsdóttir

Bryndís Björg Guðmundsdóttir, fv. skólastjóri Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, lést 25. apríl á líknardeildinni í Kópavogi, 62 ára að aldri.

Bryndís fæddist í Keflavík 1. júní 1963. Foreldrar hennar voru Guðmundur Ármann Ingólfsson og Guðrún Guðmundsdóttir.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Bryndís útskrifaðist með stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1982, lauk B.Ed. frá grunnskólaskori við Háskóla Íslands árið 2001, lauk náminu stjórnun og forysta í skólaumhverfi frá Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2006 og M.Ed. í stjórnun menntastofnana árið 2021.

Bryndís starfaði sem skólastjóri Myllubakkaskóla í 10 ár, var deildarstjóri fræðslusviðs Suðurnesjabæjar í eitt ár. Kenndi í Myllubakkaskóla, Holtaskóla og Heiðarskóla, var deildarstjóri í Heiðarskóla og aðstoðarskólastjóri í Akurskóla.

Hún var farsæll stjórnandi og hafði mikinn áhuga á fræðslumálum og velferð barna. Hún hafði víðtæka reynslu og þekkingu á skólamálum og þá aðallega málefnum grunnskóla. Lærdómssamfélagið var henni hugleikið og var hún ávallt að leita leiða til að ná fram meiri gæðum í kennslu og í skólaumhverfinu.

Bryndís var ötul í félagsstarfi. Var landsforseti góðgerðarsamtakanna Ladies Circle frá 2007-2009 og félagi í Delta Kappa Gamma á Íslandi. Stjórnarmaður í félaginu Börnin og við, áhugafélagi um brjóstagjöf. Var gjaldkeri Íslendingafélagsins í Árósum og meðlimur í Oddfellowreglunni; Rebekkustúku nr. 18, Eldey, í Reykjanesbæ. Bryndís hafði jafnframt mikinn áhuga á tónlist, lærði á píanó og var í kór.

Eftirlifandi eiginmaður Bryndísar er Arnar Þór Sigurjónsson forstöðumaður, f. 1961. Börn þeirra eru Íris Ósk, f. 1987, gift Fannari Helga Rúnarssyni og eiga þau tvö börn, Elías Snæ og Tönju Sif, Örn Brynþór, f. 1989, og Logi Bergþór, f. 1995, maki Helga Dís Halldórsdóttir. Bryndís og Arnar tóku að sér fósturbarn, Stefán Jón Friðriksson.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar