Bæjarráð vill sækja 250 milljóna króna lán
Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti að heimila bæjarstjóra að leita eftir 250 milljóna króna láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lántakan er á samþykktri fjárhagsáætlun ársins 2026 og fer til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.
Bæjarráð vísar meðal annars til stöðu framkvæmda og þess að tekjur af gatnagerðar- og tengigjöldum hafi verið lægri en áætlað var. Ráðið telur því tímabært að ráðast í lántökuna, sem sveitarfélagið hafði frestað eins lengi og kostur var.
Samkvæmt fundargerð hafði sveitarfélagið þegar greitt 369 milljónir króna í afborganir lána á árinu. Þar kemur fram að skuldahlutfallið muni lækka milli ára þótt af lántökunni verði.





