Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Málefnastefnur stjórnmálaflokka og jafnréttismál
Fimmtudagur 30. apríl 2026 kl. 09:56

Málefnastefnur stjórnmálaflokka og jafnréttismál

Undanfarna daga hafa heimgreiðslur verið áberandi í umræðunni. Við í Viðreisn teljum þær ekki forgangsmál. Hvers vegna ekki?

Í raun snýst valið milli tveggja leiða: annars vegar heimgreiðslur án lífeyrissöfnunar og hins vegar lengra fæðingarorlofs með áframhaldandi myndun lífeyrisréttinda. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Sem kona myndi ég ávallt velja seinni kostinn. 

Sveitarstjórnarstigið getur þó ekki eitt og sér lengt fæðingarorlof - en stjórnmálaflokkar sem hafa bæði fulltrúa í sveitarstjórnum og á Alþingi geta beitt sér fyrir slíkum breytingum. Og það munum við í Viðreisn gera. 

Viðreisn í Reykjanesbæ viljum stíga raunhæf skref í átt að fjölbreyttari og raunhæfari lausnum fyrir barnafjölskyldur. Fyrst ber að nefna hraðari uppbyggingu leikskóla og stuðla að góðri mönnun þeirra. Skoða þarf hvernig háskólar, sem bjóða upp á nám í leikskólafræðum, haga námsframboði sínu og hvort það sé nægilega aðgengilegt fyrir starfsfólk leikskóla sem vill afla sér menntunar samhliða starfi. 

Í öðru lagi viljum við styrkja umgjörð og stuðning við dagforeldra. 

Í þriðja lagi viljum við koma á fót dagforeldrakjarna - vettvang fyrir dagforeldra sem vilja starfa saman með það að markmið að auka öryggi barna og traust foreldra.

Að okkar mati skiptir máli að kerfið bjóði upp á valfrelsi og styðji foreldra í að taka ákvarðanir sem henta þeim og aðstæðum þeirra án þess að þær komi niður á réttindum þeirra eða tekjum til lengri tíma. 

Markmið okkar er að mæta ólíkum þörfum fjölskyldna og stuðla að sveigjanlegum og aðgengilegum úrræðum. 

Áhersla á heimgreiðslur ber, að okkar mati, vott um skammtímahugsun sem grefur undan jafnrétti til lengri tíma litið.

Aðalheiður J. Óskarsdóttir

Höfundur er í 4. sæti á lista Viðreisnar og fyrrum stjórnarkona UAK (Ungar athafnakonur)

* Vakin er athygli á viðburði Viðreisnar í kvöld, 30. apríl, klukkan 19:30 á kosningaskrifstofu Viðreisnar, Tjarnargötu 7, þar sem fjallað verður um stöðu kvenna í atvinnulífinu í Reykjanesbæ.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar