Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Fréttir

Andlegt ofbeldi, bakslag í kynjajafnrétti, klámáhrif og krafa um meiri kynfræðslu
Frá þinginu í Stapa í vetur. VF/hilmarbragi
Miðvikudagur 29. apríl 2026 kl. 17:12

Andlegt ofbeldi, bakslag í kynjajafnrétti, klámáhrif og krafa um meiri kynfræðslu

Niðurstöður af ungmennaþingum Barnaheilla

Barnaheill, með styrk frá dómsmálaráðuneytinu, héldu sex ungmennaþing um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna í febrúar og fram í apríl 2026. Alls tóku um 300 nemendur þátt í þingunum sem haldin voru á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, Egilsstöðum, Selfossi, Akureyri og Ísafirði.

Á ungmennaþingin komu nemendur úr efstu bekkjum grunnskóla og úr framhaldsskólum, og var kynjaskipting frekar jöfn. Unnið var með tengiliðum á svæðunum ásamt starfsfólki sveitarfélaganna sem vinnur með ungu fólki. Niðurstöður af ungmennaþingunum verða birtar á málþingi Barnaheilla miðvikudaginn 29. apríl þar sem fagaðilum, stjórnvöldum og fulltrúum af ungmennaþingunum verður boðið að taka þátt í umræðum.

Staðsetningarbúnaður, stafrænt ofbeldi, klám og kyrkingatök

Mikill samhljómur var um allt land varðandi upplifun unga fólksins af ofbeldi í nánum samböndum. Öll voru sammála um að slíkt væri of algengt og mun útbreiddara en flestir geri sér grein fyrir. Ítrekað kom fram að andlegt ofbeldi og stjórnun væru vandamál í samskiptum, en einnig að ungmennin væru hrædd við að segja frá.

Dægurmenning og klám hafa veruleg áhrif á hegðun, framkomu og kröfur í nánum samböndum ungmenna. Tæknin hefur þar áhrif, og krafa er um að vita alltaf hvar hinn aðilinn er með því að hafa kveikt á staðsetningarbúnaði, t.d. á Snapchat. Stafrænt ofbeldi er algengt, og mikið um að strákar skiptist á nektarmyndum af kærustum sínum án þeirra vitundar. Þá er algengt að ungmenni upplifi pressu til að stunda kynlíf, og prófa kyrkingartök og líkamlegar meiðingar í samförum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Bakslag í jafnrétti og íhaldsöm viðhorf

Bakslag er í kynjajafnrétti á samfélagsmiðlum, og fá kynin afar ólík skilaboð. Kynjaðar staðalmyndir lita hugmyndir um hinn fullkomna kærasta og kærustu, og íhaldsöm viðhorf eru að laumast inn í samskipti og sambönd ungmenna. Stelpur eigi að líta vel út og vera kvenlegar, sjá um heimilið og börnin, og vera tilbúnar að setja kærastann í fyrsta sæti. Strákar eiga aftur á móti að vera karlmannlegir, sterkir, stjórnsamir, sjá um bílinn og það sem bilar, vinna mikið og græða peninga, og kaupa blóm og gjafir.

Skýr krafa um meiri kynfræðslu og forvarnir

Enginn munur er á skilaboðum ungmennanna til stjórnvalda milli landshluta. Þau krefjast þess að stjórnvöld tryggi betri kynja- og kynfræðslu til allra barna og unglinga. Fræðslan eigi að byrja strax á yngsta stigi, og vera gerð að skyldufagi. Miklu meira fjármagn þurfi í málaflokkinn, forvarnir og fræðslu, og auka þurfi aðgengi að fagfólki og úrræðum inni í skólunum. Þá þurfi stjórnmálamenn að vera miklu betri fyrirmyndir.

Dæmi frá ungmennaþingunum:

  • Klám er undirstöðuvandamálið varðandi kynferðisofbeldi í samböndum, sérstaklega fyrir stráka

  • Það er ógeðslega erfitt að segja frá og svo er manni kannski ekki trúað

  • Það verður að vera fræðsla fyrir þá sem beita ofbeldi líka

  • Fullorðnir átta sig ekki neitt á því hvað ofbeldi í samböndum er algengt

  • Fullorðnir verða að passa að gera ekki lítið úr upplifun ungmenna. ÞIÐ eigið ekki að ákveða hvernig OKKUR líður!

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar