Íþróttamannvirki Reykjanesbæjar: Knattspyrna og fimleikar - Næstu skref
Í stefnumótun Reykjanesbæjar um uppbyggingu íþróttamannvirkja til næstu ára sem mótuð var árið 2023, var lögð áhersla á markvissa uppbyggingu, forgangsröðun framkvæmda og bætta aðstöðu fyrir íþróttaiðkun í sveitarfélaginu. Í þeirri vinnu kom skýrt fram að úrbætur á aðstöðu fyrir knattspyrnu og fimleika væru mest aðkallandi, bæði vegna fjölgunar iðkenda og ófullnægjandi húsnæðis.
Í framhaldi af þeirri stefnumótun var stýrihópur skipaður en hlutverk hans var að útfæra mismunandi sviðsmyndir að áfangaskiptingu, útbúa frumkostnaðaráætlun og leggja fram heildstæða sýn á næstu skref verkefnisins. Einnig var lagt upp með að frumhönnun taki mið af aðgengi, samnýtingu rýma og skynsamlegri nýtingu fjármuna. Starf hópsins hefur farið fram í áföngum og í samráði við hagaðila innan íþróttahreyfingarinnar. Þeirri vinnu er nú lokið fyrir fyrsta fasa verkefnisins og tillagan fer fyrir bæjarstjórn í næstu viku til samþykktar.
Í fyrsta áfanga felur tillagan í sér uppbyggingu nýrrar fimleikahallar, fjölgun æfingavalla fyrir börn og ungmenni í knattspyrnu og verulega bætta aðstöðu við gervigrasvöllinn við Afreksbraut. Þar má nefna búningsklefa sem nýtist fimleikadeild og knattspyrnu, boltageymslur og önnur nauðsynleg stoðrými. Einnig hafði stýrihópur aðgang að JEES arkitektum sem vann tillögur að frumhönnun. Tillögur hönnuðs má sjá hér að neðan en endanleg hönnun, staðsetning æfingavalla og áframhaldandi vinna verður kláruð í samráði við íþróttahreyfinguna.
Unnið er að því að setja upp bráðabirgðahúsnæði (svítu) við gervigrasvöllinn á meðan framkvæmdartíma stendur. Þessu til viðbótar er verið að bæta núverandi aðstöðu knattspyrnunnar við JBÓ völl og HS orkuvöllinn, við eigum þó langt í land og verðum að hafa sómasamlega aðstöðu fyrir meistaraflokkanna okkar.
Ljóst er að verkefni af þessari stærðargráðu krefst mikils undirbúnings og kostnaður er ekki í milljónum heldur milljörðum. Við erum að byggja mannvirki fyrir komandi kynslóðir og við verðum að vanda til verka og sýna skynsemi í staðsetningu og nýtingu á almannafé. Jafnframt vera djörf á að skapa bestu aðstöðuna og vera til fyrirmyndar fyrir önnur sveitarfélög.
Síðastliðna mánuði höfum við ekki bara safnað upplýsingum um framtíðarþarfir knattspyrnunnar og fimleikadeildar heldur allra deilda sem eru í víkjandi/bráðabirgða húsnæði þmt. Golfklúbb Suðurnesja, Hnefaleikafélag Reykjaness, Taekwondo og Borðtennisfélagi Reykjanesbæjar. Þær upplýsingar sem við höfum safnað munu nýtast vel á næstu vikum og mánuðum þegar verkefnið fer á fullt af stað og framkvæmdir hefjast en lögð verður áhersla á að geta bætt við einingum í framtíðinni.
Það er öllum ljóst sem koma að þessu verkefni hversu gríðarlega mikil þörf er á mannvirkjum fyrir íþróttahreyfinguna en ég vil ítreka að góður undirbúningur og strategísk nálgun er lykill að árangri. Nú verðum við að leggjast á eitt að klára fullnaðarhönnun, hefja framkvæmdir og bjóða öllum iðkendum og þjálfurum upp á ásættanlega aðstöðu sem er til fyrirmyndar fyrir sveitarfélagið.
Eva Stefánsdóttir
Undirrituð er formaður Íþrótta-og tómstundaráðs, formaður stýrihóps um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja Reykjanesbæjar og skipar 8.sæti á lista Framsóknar Í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16.maí nk.

Myndir: JEES arkitektar.






