Hver bað um þetta?
Það er klisja að segja að næstu kosningar séu þær mikilvægustu í manna minnum en í tilfelli ungs fólks á það svo sannarlega við. Húsnæðisstefna Framsóknar og Samfylkingarinnar til næstu 10 ára mun hafa afdrifarík áhrif á þróun sveitarfélagsins, ýta fjölskyldum út af sérbýlismarkaðnum og auka ójöfnuð til muna.
Samkvæmt húsnæðisáætlun meirihlutans er 87% af öllu íbúðarhúsnæði í uppbyggingu í Reykjanesbæ fjölbýli og mun það hlutfall halda sér til ársins 2035.
Þegar okkar kynslóð stofnar til fjölskyldu og reynir að byggja sér framtíð í Reykjanesbæ verður framboð af einbýlum, raðhúsum og parhúsum orðið svo lítið að verð þeirra mun hækka verulega. Þetta er einföld hagfræði: minna framboð þýðir hærra verð.
Afleiðingin er skýr:
- Ungar fjölskyldur komast ekki í sérbýli
- Millistéttinni er ýtt út af sérbýlismarkaðnum
- Fólk þarf að sætta sig við húsnæði sem það vill ekki
Íslenski draumurinn um að geta einhvern daginn flutt í eigið hús, með garði og rými fyrir fjölskylduna, mun verða forréttindi fárra vegna þess að vinstrimeirihlutinn er að þrengja að framboðinu.
Það er afturför þegar valfrelsi foreldra okkar er meira en komandi kynslóða.
Blokkarstefnan gengur út á að ákveða fyrir fólk hvernig það á að búa. Hún þrengir að raunverulegu valfrelsi fjölskyldna sem vilja sérbýli eða minna þéttbyggð hverfi. Þetta er ekki skipulag, þetta er stýring.
Samkvæmt könnun HMS um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga, sem kom út í apríl 2026, sér yfirgnæfandi meirihluti Suðurnesjamanna fyrir sér að búa í sérbýli eftir 5 ár.
- Einbýli: 31%
- Parhús eða raðhús: 40%
- Tví-, þrí- eða fjórbýli: 8%
- Smærra fjölbýli (6-8 íbúðir í stigagangi): 11%
- Meðalstóru fjölbýli (9-16 íbúðir í fjölbýli): 6%
- Stóru fjölbýli (yfir 17 íbúðir í stigagangi): 5%
Stuðningur við stefnu Framsóknar og Samfylkingarinnar er því nánast enginn á Suðurnesjum og aðeins einn flokkur talar fyrir raunverulegu valfrelsi í húsnæðismálum, það er Sjálfstæðisflokkurinn.
Við viljum stórauka lóðaframboð fyrir einbýli, tvíbýli, raðhús og parhús. Það segir sig sjálft að það á ekki að vera á færi fárra að geta flutt í slíkt húsnæði. Það verður hins vegar afleiðingin af stefnu vinstrimeirihlutans, fái þessir flokkar áframhaldandi stuðning í komandi kosningum.
Hver bað um þessa blokkarstefnu?
Ekki unga fólkið. Og í raun er erfitt að sjá hverjir aðrir hafa kallað eftir svona einhliða uppbyggingu.
Í komandi kosningum gefst tækifæri til að breyta um stefnu, að stíga á bremsuna áður en það er of seint og tryggja að Reykjanesbær verði áfram staður þar sem fólk getur valið sér heimili sem hentar því.
Axel Ingi Auðunsson, 25 ára, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins
Helga Guðrún Sigurðardóttir, 23 ára, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins
Hermann Borgar Jakobsson, 20 ára, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins
Logi Þór Ágústsson, 21 árs, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins








