Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Póli-tík
Fimmtudagur 30. apríl 2026 kl. 11:48

Póli-tík

Fráfarandi bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samanstendur af þremur framboðum, E-, D- og L-lista, þar sem E- og D-listi mynda meirihluta.

Það er vel þess virði að líta til baka og velta fyrir sér hvernig hlutirnir hafa þróast og hvernig hið pólitíska landslag hefur verið þetta kjörtímabil í Sveitarfélaginu Vogum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Við upphaf kjörtímabils varð bæjarstjórn ljóst að til að ná tökum á rekstrinum og vinna sig í átt að sjálfbærni þyrftu allir að leggjast á eitt og leggja sitt af mörkum í þeirri vegferð.

Upplegg bæjarstjórnar var því skýrt, að leggja áherslu á breytt skipulag stjórnsýslu og vinnulag bæjarráðs og bæjarstjórnar. Efling tekjustofna og hagræðing í rekstri voru sett í forgang á sama tíma. Til þess að ná slíkum árangri þarf skýr markmið og eftirfylgni þeirra aðgerða sem lagt er upp með. Lykilþáttur í þeirri vegferð er samvinna og samtakamáttur þvert á flokka.

Sú nálgun sem hefur verið beitt þetta kjörtímabil er einstök, a.m.k. á þeim pólitíska ferli sem undirritaður hefur upplifað hér í Sveitarfélaginu Vogum. Nálgunin hefur því verið byggð á trausti og samvinnu þar sem bæjarfulltrúar mætast í lausnamiðaðri vinnu með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi í stað átakapólitíkur þar sem oft fylgir fjárhagsleg sóun. Oft eru markmið framboðanna svipuð eða söm en samtalið snýst um leiðirnar að settu marki.

Ef bæjarfulltrúar ná að setja pólitíkina til hliðar og horfa á stóru myndina þá má ná árangri til heilla fyrir alla íbúa samfélagsins. Það er einmitt þannig sem E-listinn hefur unnið á þessu kjörtímabili og erum við nú að sjá árangur þeirra vinnu. Í drögum að ársreikningi fyrir árið 2025 er sveitarsjóði skilað með jákvæðri rekstrarniðurstöðu. A-hluta í kringum 290 mkr. og A og B hluta í kringum 350 mkr. Óhætt er að segja að reksturinn sé búinn að ná jafnvægi og heilbrigðri stöðu sem gefur okkur kraft til fjárfestinga á næsta kjörtímabili.

Það er von mín að sú vinnumenning sem náðst hefur í bæjarstjórn og bæjarráði sveitarfélagsins skili sér inn í næsta kjörtímabil því þannig má ná miklum árangri sem allir íbúar sveitarfélagsins munu njóta góðs af í framtíðinni. Þannig mun E-listinn nálgast verkefnin áfram fái hann til þess umboð eftir kosningar.

Birgir Örn Ólafsson

Forseti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga og oddviti E-listans

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar