„Við erum góðar og gefumst aldrei upp“
Það var mikil gleði í herbúðum Grindavíkur/Njarðvíkur eftir dramatískan sigur í fyrsta heimaleik félagsins í efstu deild í kvöld. Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, var að rifna úr stolti í viðtali við Víkurfréttir strax eftir leik og viðurkenndi að lokasekúndurnar hefðu verið hreinasti draumur.
Gestirnir að norðan mættu af krafti og náðu forystunni strax á 10. mínútu. Þar var að verki Erin Flurey sem skoraði í autt markið eftir undirbúning Margrétar Árnadóttur. Þór/KA var sterkara liðið í fyrri hálfleik og fékk nokkur góð tækifæri til að bæta við, en Genevieve Jae Crenshaw stóð vaktina vel í marki heimakvenna.
Í síðari hálfleik snerist dæmið við. Á 62. mínútu nýtti Natasha Anasi sér klaufaskap í vörn gestanna, vann boltann og jafnaði metin í 1–1. Leikurinn virtist ætla að fjara út í jafntefli þar til á lokamínútu venjulegs leiktíma. Eftir hornspyrnu tókst Sigríði Emmu F. Jónsdóttur að pota boltanum í netið og tryggja Grindavík/Njarðvík öll stigin þrjú við gríðarleg fagnaðarlæti.
Á 62. mínútu nýtti Natasha Anasi sér klaufaskap í vörn gestanna, vann boltann og jafnaði metin í 1–1.
Leikurinn var hnífjafn fram á lokastundu, en Gylfi sást lifa sig verulega inn í lokasóknina á hliðarlínunni. Blaðamaður heyrði til þjálfarans þegar ein mínúta lifði eftir af leiknum, þar sem hann sagði að að yrði sætt er liðið myndi skora sigurmark. Aðspurður um þetta svaraði hann léttur í bragði að hann hafi greinilega verið bænheyrður.
Sigurinn var sögulegur þar sem þetta var fyrsti heimaleikur félagsins í efstu deild kvenna, Bestu deildinni. Gylfi lagði áherslu á að þetta snerist um meira en bara þrjú stig; þetta snerist um samfélagið og stoltið sem fylgir því að vera loksins komin á meðal þeirra bestu.
„Þsð er mikið stolt, gleði og þakklæti,“ sagði Gylfi þegar hann var spurður úr í tilfinninguna að fara með sigur úr leiknum og bætti við: „Það er ótrúlega gaman að geta gefið fólkinu sem mætti í stúkuna góðar tilfinningar eins og við erum að upplifa núna.“
Þrátt fyrir flotta stemningu vill Gylfi sjá enn fleiri mæta á völlinn í næstu leikjum. Hann bendir á að liðið sé rétt að byrja og frammistaðan á vellinum eigi eftir að trekkja að. Þá truflar það aðeins að karlalið Grindavíkur er að leika mikilvægan leik í körfuboltanum í kvöld.
„Það er nóg eftir af mótinu og við ætlum að bæta áhorfendafjöldann eins og frammistöðuna á vellinum. Það er ógeðslega gaman að horfa á eitthvað svona. Við erum góðar og fólk sem mætir á völlinn er ekki svikið,“ sagði Gylfi kokhraustur.
Eftir hornspyrnu tókst Sigríði Emmu F. Jónsdóttur að pota boltanum í netið og tryggja Grindavík/Njarðvík öll stigin þrjú við gríðarleg fagnaðarlæti.
Karakterinn skóp sigurinn
Aðspurður um hvað stæði upp úr eftir leikinn var Gylfi fljótur til svars. Það voru ekki taktískir tilburðir heldur andlegur styrkur leikmanna sem skipti sköpum.
„Karakter. Bara hugarfar. Við gefumst aldrei upp og vitum að við erum með gott lið. En að vera líka með gott hugarfar ofan á það er bara gott.“
Gylfi lauk viðtalinu á einfaldan hátt og sagði að efst í huga væri einfaldlega ein tilfinning: „Gleðin.“









