KSK eignir ehf. selja hluta af núverandi fasteignasafni
-liður í endurskipulagningu eignasafnsins
KSK eignir ehf, dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja (KSK), hefur undirritað samning um sölu á hluta af fasteignum félagsins til Dranga hf. Samningurinn er háður fyrirvörum sem stefnt er að því að aflétta fyrir lok maí nk.
Drangar hf. urðu til á síðasta ári og er eigandi Samkaupa, Orkunnar, Löðurs, Lyfjavals og fleiri félaga. Kaupfélagið er næst stærsti hluthafi Dranga hf.
Þær fasteignir sem um ræðir er verslunarhúsnæði víðs vegar um landið, samtals 25 eignir, sem Samkaup notar í sínum rekstri. KSK eignir munu áfram eiga fasteignirnar við Krossmóa í Reykjanesbæ þ.e. verslunarmiðstöðina við Krossmóa 4 og skrifstofu- og þjónustubygginguna við Krossmóa 4a auk fleiri fasteigna.
Þessi sala er liður í stefnu KSK eigna og Kaupfélagsins að endurskipuleggja eignasafn félaganna, minnka áhættu og leggja meiri áherslu á eignir á félagssvæðinu og höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt mun Kaupfélagið horfa í framtíðinni til frekari fjárfestinga í samræmi við þá sýn félagsins að vera öflugur þátttakandi í atvinnulífi á félagssvæðinu og styðja við samfélagið.








