Rúnar og Logi áfram með Njarðvík
Rúnar Ingi Erlingsson og Logi Gunnarsson verða áfram með meistaraflokk karla næstu tvö árin en Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur framlengt samninga við þá félaga.
„Við erum mjög ánægð með þá Rúnar og Loga og stjórnin er spennt fyrir áframhaldandi uppbyggingu á karlaliðinu en undirbúningur fyrir næstu leiktíð er þegar hafinn,“ sagði Hafsteinn Sveinsson formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur á heimasíðu UMFN.
Rúnar og Logi stýrðu Njarðvíkingum í 8. sæti deildarinnar á tímabilinu en Njarðvíkingar kvöddu vertíðina eftir 3-1 ósigur í 8-liða úrslitum gegn deildarmeisturum Grindavíkur.








