Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Íþróttir

Fyrsti sigur Keflvíkinga kom fyrir norðan - unnu KA 1-2
Stefán Ljubicic skoraði sigurmark Keflavíkur. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 26. apríl 2026 kl. 20:19

Fyrsti sigur Keflvíkinga kom fyrir norðan - unnu KA 1-2

Keflvíkingar unnu sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í knattspyrnu á þessu tímabili þegar þeir höfðu betur gegn KA mönnum á Akureyri, 1-2. Stefán Ljubicic skoraði sigurmark Keflvíkinga í síðari hálfleik.

Keflvíkingar mættu með kassann úti norður í land og voru mun sterkari aðilinn í leiknum. Þeir voru mun meira með boltann og Sindri Snær Magnússon átti tvö skot á fyrstu sautján mínútunum sem enduðu í stöng KA-marksins. Keflvíkingar voru mjög ógnandi. KA-menn skoruðu hins vegar fyrsta mark leiksins gegn gangi leiksins á 31. mínútu eftir slæm mistök Ásgeirs Orra markvarðar Keflavíkur sem fór í óvissuferð út úr vítateignum.

Keflvíkingar héldu áfram að byggja upp spil og pressa á mark KA. Upp úr einni sókninni fengu bítlabæjardrengirnir hornspyrnu sem Muhamed Alghoul tók. Boltinn barst með snúningi inn í teig þar sem Davíð Helgi Aronsson tók á móti honum viðstöðulaust og sendi hann í bláhornið, 1-1.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Keflvíkingar héldu áfram að vera meira með boltann og uppskáru flott mark á 60. mínútu. Þá unnu þeir boltann á miðjunni og hann barst áfram að vítateig KA til Eiðs Orra Ragnarssonar sem framlengdi hann á snilldarlegan hátt til Stefáns Ljubicic sem var kominn inn í teig og kláraði sóknina á frábæran hátt þegar hann sendi boltann á fjærstöngina í markið, 1-2.

Heimamenn sóttu í sig veðrið við þetta og voru ákveðnari næstu tíu mínútur og voru nálægt því að jafna þegar boltinn hafnaði í stönginni eftir frábært skot Olivers Heiðarssonar sem skoraði mark KA í fyrri hálfleik. Keflvíkingar héldu haus í lokin og voru nær því að bæta við marki en að fá á sig.

Keflvíkingar áttu sigurinn skilið og uppskáru fyrsta sigur tímabilsins. Þeir hafa leikið vel í fyrstu leikjunum þó þeir hafi aðeins uppskorið eitt stig, eftir jafntefli við Breiðablik í 3. umferð. Stefán Ljubicic hefur skorað 3 mörk í fjórum leikjum. Fleiri leikmenn hafa staðið sig vel. Það er ekki ólíklegt að Davíð Helgi Aronsson í vörn Keflavíkur eigi eftir að fara í landsliðstreyju í framtíðinni en hér er á ferðinni gríðarlega efnilegur leikmaður en hann er aðeins 19 ára gamall. Kappinn kom frá Víkingi. Sindri Snær Magnússon er einn af jöxlum Keflavíkurliðsins og hann var mjög góður og er einn af leiðtogum liðsins.

Sigurinn var mikilvægur fyrir Keflavík en hann var líka nokkuð sannfærandi og sanngjarn.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar