Grindavík tapaði á Hlíðarenda - staðan 1-1 gegn Val
Grindavík tapaði fyrir Val á Hlíðarenda í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 79-72.Staðan í einvíginu 1-1.
Leikurinn var hnífjafn mest allan tímann. Staðan í hálfleik var 41-41 en heimamenn náðu þriggja stiga forskoti í lok þriðja leikhluta. Þeir voru síðan mun sterkari í lokaleikhlutanum og uppskáru sigur.
Miklu munaði að NBA leikmaðurinn fyrrvernadi, Jeremy Parker skoraði ekki nema tíu stig en gaf sjö stoðsendingar. Deandre Kane var hins vegar mjög góður. Hann skoraði 22 stig og tók 12 fráköst. Jordan Semple skoraði 18 stig og ólafur Ólafs setti niður slatta af þristum og kláraði 16 stig.
Valsmenn eiga mikið vígi í Hlíðarenda en Grindvíkingar eru með heimavallaréttinn í þessu einvígi og það gæti reynst þeim mikilvægt í jafnri seríu.







