Stórleikur hjá Keflavík - rúlluðu yfir Hauka og jöfnuðu 1-1
Keflavíkurkonur jöfnuðu við Hauka í einvígi liðanna í undanúrslitum í Bónus-deild kvenna í körfubolta í Blue höllinni í kvöld. Þær unnu öruggan 17 stiga sigur, 98-81 og náðu mest 31 stiga forskoti.
Keflavík byrjaði með látum og náði strax góðu forskoti. Munurinn var átta stig eftir fyrsta leikhluta en sá munur jókst í nítján stig eftir annan leikhluta, 60-41. Magnaður fyrri hálfleikur hjá bikarmeisturum Keflavíkur.
Keflavíkurkonur héldu áfram með frábærri vörn og hittu vel í þriðja leikhluta og juku muninn mest í 31 stig en þær bættu við níu stigum við forskotið í þriðja leikhluta.
Haukakonur mættu grimmar í lokaleikhlutann og skoruðu þrettán stig í röð og þrýstu á Keflvíkingar sem misstu aðeins fókus um tíma. En heimakonur gáfu ekkert eftir í baráttunni og innsigluðu öruggum og glæsilegum sigri og jöfnðu einvígið.
Sofie Preetzmann var í byrjunarliðinu hjá Keflavík og þakkaði fyrir það með stórleik í byrjun en hún skoraði 18 stig. Sara Rún Hinriksdóttir leiddi lið Keflavíkur eins og alvöru leiðtogi og skoraði 21 stig og tók 9 fráköst. Emelía Ósk hefur verið frábær í vetur og líka í úrslitakeppninni en hún skoraði 16 stig sem og Keishana Washington sem sendi líka 12 stoðsendingar.
Krystal Freeman var best hjá Haukum og skoraði 25 stig en þær rauðu sáu aldrei til sólar í þessum leik.
Keflavík-Haukar 98-81 (29-21, 31-20, 24-15, 14-25)
Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 21/9 fráköst/5 stoðsendingar, Sofie Tryggedsson Preetzmann 18/4 fráköst, Keishana Washington 16/5 fráköst/12 stoðsendingar, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 16/4 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 11, Anna Ingunn Svansdóttir 8, Anna Lára Vignisdóttir 5, Angelina Turmel 3/5 fráköst, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0, Agnes María Svansdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0.
Haukar: Krystal-Jade Freeman 25/5 fráköst, Amandine Justine Toi 19, Sólrún Inga Gísladóttir 11, Þóra Kristín Jónsdóttir 9/7 stoðsendingar, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 9/5 fráköst, Catherine Mosengo Masa 6/5 fráköst, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 1, Sigrún Björg Ólafsdóttir 1, Ísabella Fjeldsted Magnúsdóttir 0, Lovísa Björt Henningsdóttir 0, Agnes Jónudóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0/6 fráköst.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson, Eggert Þór Aðalsteinsson
Áhorfendur: 314
Viðureign: 1-1







