Njarðvíkurkonur svöruðu fyrir sig gegn Grindavík - staðan 1-2
Njarðvík minnkaði muninn í einvíginu gegn Grindavík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta eftir sigur í IceMar höllinni í kvöld. Lokatölur 94-88 og staðan 1-2.
Njarðvíkurkonur mættu grimmar til leiks og uppskáru eftir því og leiddu með fjórtán stigum eftir fyrsta leikhluta. Lítið gekk hjá þeim grindvísku en þær bættu um betur og unnu annan leikhluta með einu stigi. Staðan í hálfleik 44-31.
Njarðvík náði mest tuttugu stiga forskoti í þriðja leikhluta 69-49 þegar 2:23 mín. voru eftir. Grindvíkingar settu þá í fluggír og skoruðu síðustu tólf stig fjórðungsins og minnkuðu muninn í átta stig 69-61.
Þær grindvísku opnuðu fjórða leikhluta með þristi og munurinn var þá aðeins fimm stig. Njarðvíkingar rönkuðu þá við sér og settu niður góð skot og juku muninn mest aftur í þrettán stig. Grindavík minnkaði muninn í blá lokin en sigur UMFN var þó aldrei í hættu og hann var sanngjarn 94-88.
Njarðvíkurkonur voru miklu betri í öllum sínum aðgerðum í þessum leik eftir að hafa verið í basli í fyrstu tveimur leikjunum. Brittany Dinkins fór mikinn og skoraði 31 stig, tók 7 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Danielle Rodriguez lék vel og var með 19 stig og tók sex fráköst og gaf jafn margar stoðsendingar. Ungu Njarðvíkurstelpurnar, Hulda María Agnarsdóttir (9 stig), Helena Rafnsdóttir (8 stig) og Sara Björk Logadóttir (7 stig) voru allar mjög góðar og settu oft mikilvæg stig en þær skoruðu saman sex þrista. Þá var Paulina Hersler með 14 stig.
Grindvíkingar voru daufir í fyrsta leikhluta en þær komu síðan öflugar eftir það þó það hafi ekki dugað til að sópa þeim njarðvísku út úr keppninni. Abby C. Beeman skoraði margar glæsikörfur, samtals 23 stig, sama og Ellen Nyström. Emilie Hesseldal var gríðarlega öflug með 15 stig og heil 14 fráköst. Þá var Farhiya líka góð með 19 stig.
Það bíður spennandi viðureign í Grindavík þar sem heimakonur geta tryggt sig inn í úrslitin með sigri. Vinni Njarðvíkingar fá þær fimmta leikinn á heimavelli.
Njarðvík-Grindavík 94-88 (26-12, 18-19, 25-30, 25-27)
Njarðvík: Brittany Dinkins 31/7 fráköst/6 stoðsendingar/6 stolnir, Danielle Victoria Rodriguez 19/6 fráköst/6 stoðsendingar, Paulina Hersler 14/4 fráköst, Hulda María Agnarsdóttir 9/6 fráköst, Helena Rafnsdóttir 8, Sara Björk Logadóttir 7, Sofia Roma 6, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Inga Lea Ingadóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Krista Gló Magnúsdóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.
Grindavík: Ellen Nystrom 23, Abby Claire Beeman 23/4 fráköst/6 stoðsendingar, Farhiya Abdi 19/5 fráköst, Emilie Sofie Hesseldal 15/14 fráköst, Þórey Tea Þorleifsdóttir 6, Isabella Ósk Sigurðardóttir 2/6 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 0, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Gunnlaugur Briem, Jakob Árni Ísleifsson
Áhorfendur: 378
Viðureign: 1-2









