Keflvíkingar þurfa sigur á laugardag eftir tap í Hafnarfirði
Keflvíkingar sóttu ekki gull í greipar Haukakvenna í þriðja leik liðanna í Bónus-deild kvenna í Hafnarfirði í kvöld og töpuðu með fjórtán stiga mun 86-72. Staðan 2-1 fyrir Hauka sem geta með sigri suður með sjó á laugardag sópað bikarmeisturum Keflavíkur út úr keppninni.
Keflavíkurkonur byrjuðu betur og leiddu með þremur stigum eftir fyrsta leikhluta 13-16. Haukakonur svöruðu með hörkuleik í öðrum leikhluta og unnu hann með níu stigum. Staðan í hálfleik 41-35.
Keflvíkingar voru í vandræðum í þriðja leikhluta og töpuðu honum með níu stigum og voru komnar í vandræði fimmtán stigum undir. Þær réttu úr kútnum í lokaleikhlutanum og minnkuðu muninn mest í tíu stig en nær komust þær ekki og sigur Hauka sanngjarn, 86-72.
Keishana Washington og Sara Rún Hinriksdóttir leiddu lið Keflvíkinga og skoruðu báðar 19 stig, Sara var mjög góð í vörn og sókn. Aðrar náðu sér ekki á strik en í heildina náði liðið sér einhvern veginn ekki á strik, sérstaklega í sókn og ljóst að Keflavíkurkonur þurfa að gera mun betur til að vinna Íslandsmeistara (2025) og deildarmeistara Hauka í næsta leik í Blue höllinni á laugardag. En það má ekki gleyma því að Keflvíkingar eru bikarmeistarar og eru með hörku lið og léku mjög vel í öðrum leiknum. En betur má ef duga skal. Þær geta unnið Hauka en til þess þarf liðið að leika betur en í tveimur tapleikjum í þessu einvígi sem hefur verið sérstakt hvað það varðar að enginn þessara þriggja leikja hafa boðið upp á mikla spennu í lokin.
Haukar-Keflavík 86-72 (13-16, 28-19, 25-16, 20-21)
Keflavík: Keishana Washington 19, Sara Rún Hinriksdóttir 19/9 fráköst/8 stoðsendingar, Sofie Tryggedsson Preetzmann 7/8 fráköst/5 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 7/4 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 6, Anna Lára Vignisdóttir 5, Angelina Turmel 5/8 fráköst, Agnes María Svansdóttir 2, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 2, Bríet Sif Hinriksdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0.
Haukar: Krystal-Jade Freeman 26/13 fráköst, Amandine Justine Toi 17, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 10/5 fráköst/5 stoðsendingar, Catherine Mosengo Masa 8/7 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 6, Lovísa Björt Henningsdóttir 6, Þóra Kristín Jónsdóttir 6/7 stoðsendingar, Sigrún Björg Ólafsdóttir 4/5 fráköst/5 stolnir, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Ásdís Freyja Georgsdóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0, Agnes Jónudóttir 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Birgir Örn Hjörvarsson
Áhorfendur: 380
Viðureign: 2-1









