„Láttu þig langa í það sem þú hefur“
Þegar ég horfði á myndirnar af fólkinu okkar í stólaleikfimi hjá henni Þurý og sá öll þessi brosandi andlit sem ánægjan skein af hugsaði ég „Það hlýtur að vera gott að búa í Suðurnesjabæ“.
Í framhaldinu fór ég að kanna hvað væri í boði fyrir okkur „gamla fólkið“ og þar kom ég ekki að tómum kofanum. Bærinn okkar, Suðurnesjabær, er skilgreindur sem Heilsueflandi samfélag og hér getum við sem eldri erum sótt allskyns heilsueflandi tíma, allt frá sundleikfimi til jógadans, verið í bókaklúbbi í Bókasafninu og í Unuhúsi í Garði. Við getum sótt félagsstarfið í Auðarstofu og Miðhúsum og þar höfum við tækifæri á að fá keyptan mat. Öll sú afþreying sem okkur stendur til boða kostar okkur ekkert nema það að mæta og eðlilega greiðum við lágmarksverð fyrir efnin sem við notum í föndri sem við vinnum að.
Við höfum fengið heilsugæslustöð og dagdvöl í sveitarfélagið okkar og þar er stutt við áframhaldandi sjálfstæða búsetu fólks með því að veita öruggt umhverfi og með þessu er leitast við að rjúfa félagslega einangrun fólks og um leið er einnig stuðlað að hreyfingu og virkni.
Á síðast liðnu ári var unnið að stefnu Suðurnesjabæjar í málefnum eldri borgara, ásamt aðgerðaráætlun. Stefnunni er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvaðanatöku og þróun þjónustu við eldri borgara á komandi árum. Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti samhljóða að staðfesta stefnuna og aðgerðaráætlunina þann 10. desember 2025.
Yfirskrift stefnunnar er „Farsæl efri ár“ og þar er tekið á flestum þeim þáttum sem efla og bæta lífsgæði eldri borgara. Í stefnunni er meðal annars lögð áhersla á að tryggja að hér verði byggður lífsgæðakjarni með íbúðum fyrir 60 ára og eldri og hjúkrunarheimili. Þá er gert ráð fyrir að efla dagdvöl og félagsstarf og aðra þá starfssemi sem mun nýtast eldri borgurum í Suðurnesjabæ.
Samfylkingin og óháðir í Suðurnesjabæ hefur unnið ötullega að málefnum eldri borgara og mun gera það áfram. Við vinnum saman að þeim markmiðum sem við stefnum að og finnum þeim málum farveg sem við teljum skipta máli fyrir fólkið okkar og framtíð Suðurnesjabæjar.
Að lokum hvet alla eldri borgara í Suðurnesjabæ til að kíkja við á kosningamiðstöðinni okkar á Garðvangi á 1. maí, degi verkalýðsins, og 10. maí þegar við ætlum að fjalla um málefni eldri borgara með góðum veitingum.
Jórunn Alda Guðmundsdóttir,
frambjóðandi á lista Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ









