Langbest bauð í 40 ára afmæli
Eigendur Langbest buðu vinum og velunnurum í afmælisveislu á veitingastað sínum síðasta vetrardag. Veitingastaðurinn fagnar fertugsafmæli á árinu og í tilefni tímamótanna var ákveðið að bjóða upp á nýjan matseðil.
Hjónin Ingólfur Karlsson og Helena Guðjónsdóttir hafa síðustu þrjá áratugina staðið í brúnni og rekið staðinn af myndarbrag, oft í ólgusjó. Axel Jónsson, sem þá rak veitingahúsið Glóðina, opnaði Langbest árið 1986 en hann hóf rekstur Glóðarinnar 1983 og staðurinn var sá fyrsti á Suðurnesjum sem fékk vínveitingaleyfi. Ingó fékk nasaþefinn af veitingamennsku þegar hann fór í starfskynningu hjá honum 13 ára gamall við að smyrja samlokur. Gunnar Friðriksson keypti Langbest af stofnandanum og rak hann í tæpan áratug þegar Ingólfur og Helena tóku við keflinu.
Langbesthjónin hafa því staðið í brúnni í rétt tæp þrjátíu ár sem eigendur. „Það er gaman að breyta einhverju á svona stórum tímamótum og nýr matseðill er stærsti þátturinn. Við fluttum á Aðaltorg fyrir þremur árum og sá flutningur gekk vel og við innréttuðum nýjan veitingastað sem fékk strax mjög góðar viðtökur á nýjum stað,“ sagði Ingólfur.
Fjölskylda, vinir og fleiri skáluðu fyrir þeim hjónum í veislunni en gestirnir fengu að smakka á nýjum réttum sem eru komnir á matseðilinn og fengu góðar móttökur. Hægt er að sjá þá á heimasíðu staðarins, langbest.is. Hér eru nokkrar myndir úr afmælispartýinu.

















