Miðflokkurinn í Reykjanesbæ
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ

Mannlíf

Konur í Reykjanesbæ fræðast um fjárfestingar
Einar Hannesson (lengst til hægri) verður útibússtjóri Arion banka sem opnar á Aðaltorgi í Reykjanesbæ 5. maí nk.
Föstudagur 1. maí 2026 kl. 06:56

Konur í Reykjanesbæ fræðast um fjárfestingar

Arion banki opnar í Reykjanesbæ í byrjun maí.

Ljóst er að áhugi kvenna á fjárfestingum er mikill á Reykjanesinu en þann 22. apríl hélt Arion banki Konur fjárfestum viðburð á Park Inn by Radisson í Reykjanesbæ og er skemmst frá því að segja að konur af svæðinu fjölmenntu þannig að sækja þurfti stóla inn í geymslur og upp á háaloft.

Árið 2024 ýtti Arion banki úr vör langtímaátakinu Konur fjárfestum sem hefur að markmiði að efla konur þegar kemur að fjárfestingum og fyrirtækjarekstri. Kveikjan að átakinu var einföld; í dag ríkir ekki jafnræði milli kynja þegar kemur að sparnaði, lífeyriseign eða þátttöku á fjármálamarkaði, sem skýtur skökku við enda Ísland rómað um víða veröld fyrir að vera í forvígissveit jafnréttismála.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Efla bæði tengslanet kvenna og fjármálalæsi þeirra

Á fundinum í Keflavík hélt Birna Rún Eiríksdóttir fjörlegt erindi um reynslu sína af því að starfa sem leikkona og uppistandari og halda utan um fjármálahliðina. Á eftir fór svo Snædís Ögn yfir grunnatriðin í fjárfestingum, allt frá fyrstu skrefunum og yfir í uppbyggingu eignasafns, og Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, talaði um stóru myndina í hagkerfinu. Erna Björg rýndi í stöðuna í efnahagsmálum á alþjóðavísu og spáði fyrir um þróunina á komandi misserum og sköpuðust líflegar samræður sem héldu áfram að dagskrá lokinni. „Þetta var mjög skemmtilegt og við erum í skýjunum með mætinguna,“ segir Snædís Ögn.

„Þátttaka á fjármálamarkaði er svo mikilvæg leið til að hafa áhrif í samfélaginu og byggja upp eigin framtíð. Með því að fjárfesta tökum við virkan þátt í þróun samfélagsins. Því fleiri konur sem taka þátt, því meiri verða auðvitað áhrif þeirra.“

Snædís Ögn Flosadóttir er forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka. Hún segir að bankinn hafi staðið fyrir meira en hundrað Konur fjárfestum viðburðum víðs vegar um landið á síðustu tveimur árum. Tæplega tíu þúsund konur hafi sótt viðburðina og áhrif þeirra megi nú þegar sjá í aukinni þátttöku kvenna í fjárfestingum. Það sé því deginum ljósara að konur hafa brennandi áhuga á heimi fjárfestinga en þurfi kannski annars konar vettvang og eins fleiri fyrirmyndir á þessu sviði.

„Með því að búa til þessa umgjörð í kringum Konur fjárfestum, þar sem konur geta borið saman bækur sínar, eflum við bæði áhuga þeirra og kjark til að stíga næstu skref, inn í heim fjárfestinga og fyrirtækjareksturs,“ segir Snædís Ögn.

Arion banki opnar í Reykjanesbæ

Að lokum má geta þess að Arion banki opnar nýtt útibú í Reykjanesbæ þann 5. maí. Í tilkynningu kemur fram að starfsfólk bankans hlakkar til að efla enn frekar sambandið við einstaklinga og fyrirtæki á þessu öfluga og vaxandi svæði.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á viðburðinum.

Kvennakvöld Arion

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar