Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Tími breytinga í umhverfis- og skipulagsmálum Reykjanesbæjar
Mánudagur 4. maí 2026 kl. 09:32

Tími breytinga í umhverfis- og skipulagsmálum Reykjanesbæjar

Undirritaður hefur gegnt formennsku í umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar í nær fjögur ár. Á þeim tíma hefur orðið æ ljósara að núverandi skipulag umhverfis- og skipulagssviðs bæjarins þarfnast endurskoðunar. Verkefnin hafa aukist verulega og álagið á sviðinu er orðið mikið. Ég segi að nú sé kominn tími á breytingar.

Skipulagsmálin ein og sér krefjast mikillar vinnu. Á hverju ári berast um 300 til 400 erindi inn á sviðið sem þarf að taka til meðferðar. Þegar um slíkan fjölda mála er að ræða er hætt við að aðrir mikilvægir málaflokkar fái minni athygli en æskilegt er.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Sérstaklega á þetta við um umhverfismálin. Umhverfismál skipta lífsgæði bæjarbúa gríðarlega miklu máli. Græn svæði, umhirða bæjarlandsins og uppbygging vistvæns umhverfis þurfa að vera í forgangi. Því er mikilvægt að umhverfismálin verði ekki aukaverkefni heldur sjálfstæður og öflugur málaflokkur.

Það er tímabært að skipta sviðinu upp í tvö sjálfstæð svið; skipulagssvið annars vegar og umhverfissvið hins vegar. Með slíkri breytingu gæti hvor málaflokkur fengið skýrari fókus og þá auknu faglegu athygli sem þeir eiga skilið.

Efling Umhverfismiðstöðvarinnar er einnig nauðsynleg. Græn svæði í bænum þurfa að verða betri og aðgengilegri og gróðursetning á að vera markviss hluti af skipulagningu bæjarins. Fráveitumál eru í betri farvegi eftir ráðningu veitustjóra, en fram undan eru kostnaðarsöm verkefni sem krefjast skýrrar forgangsröðunar og góðrar stjórnunar.

Skipulagsmál í Reykjanesbæ eru flókin, meðal annars vegna þess að land innan bæjarmarka er í eigu mismunandi aðila, þar sem hagsmunir bæjarins, ríkisins og einkaaðila fara saman. Það gerir skipulagsvinnu hægari og flóknari.

Því tel ég að fyrsta verk nýrrar bæjarstjórnar, samhliða heildarendurskoðun á aðalskipulagi bæjarins, ætti að vera uppstokkun á umhverfis- og skipulagssviði. Markmiðið þarf að vera aukin skilvirkni, betri nýting fjármagns og umfram allt bætt þjónusta við bæjarbúa.

Róbert Jóhann Guðmundsson
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar
og skipar annað sæti á lista Framsóknar (B) í Reykjanesbæ til sveitarstjórnarkosninga 16. maí nk.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar