Miðflokkurinn í Reykjanesbæ
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ

Aðsent

Velferð sem styrkir fólk og samfélag
Mánudagur 4. maí 2026 kl. 09:28

Velferð sem styrkir fólk og samfélag

Atvinna og velferð eru meðal þeirra málefna sem ég legg mesta áherslu á. Ég býð mig fram til setu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar vegna þess að ég vil stuðla að raunverulegum lífsgæðum fyrir íbúa, þar sem fleiri fá tækifæri til að standa á eigin fótum og taka virkan þátt í samfélaginu.

Í dag starfa ég sem atvinnu- og virkniráðgjafi og það starf hefur mótað mig bæði faglega og persónulega. Ég hef unnið náið með fólki sem hefur verið lengi utan vinnumarkaðar og staðið frammi fyrir flóknum aðstæðum. Reynslan hefur sýnt mér hversu stórt skref það er að fara aftur til vinnu og hversu mikið hugrekki það krefst.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Það er mér sérstök gleði að fá að fylgja fólki þessa leið og sjá það ná aftur fótfestu, finna trú á eigin getu og öðlast sjálfstæði. Að sjá einstakling sem áður þurfti að reiða sig á fjárhagsaðstoð standa sjálfur á eigin fótum hreyfir við mér í hvert skipti. Slíkur árangur er ekki sjálfgefinn, en hann er mögulegur þegar stuðningur er markviss og samfelldur.

Reynsla mín af þessu starfi hefur kennt mér að velferðarmál snúast fyrst og fremst um fólk, ekki bara kerfi. Ég hef með eigin augum séð hversu miklu máli skiptir að fólk upplifi öryggi, skilning og virðingu þegar lífið er ekki einfalt. Þegar á reynir skipta samskipti, hlýja og traust öllu máli.

Þess vegna þarf velferðarþjónustan að vera aðgengileg og hafa það skýra markmið að stytta leiðina frá stuðningi til atvinnu og virkni. Það dugar ekki að bregðast aðeins við vanda, það þarf að skapa raunhæfar aðstæður sem gera fólki kleift að komast áfram.

Í Reykjanesbæ búum við í fjölbreyttu samfélagi þar sem mætast ólíkar sögur, þarfir og framtíðartækifæri. Það skiptir mig máli að þjónustan endurspegli þessa fjölbreytni og sé bæði aðgengileg og mannúðleg. Hvort sem fólk er alið upp hér eða hefur flutt hingað síðar á lífsleiðinni á það að finna að það eigi heima hér og skipti máli.

Fyrir mér snýst velferð ekki aðeins um að bregðast við vanda, heldur um að byggja upp til framtíðar. Það felur í sér að veita stuðning sem styrkir fólk til lengri tíma, eflir sjálfstæði og eykur raunverulega þátttöku í samfélaginu. Þess vegna legg ég áherslu á atvinnu, virkni og samheldni, því þar liggur lykillinn að sterkari heild.

Með þeirri reynslu og sýn sem ég hef öðlast vil ég leggja mitt af mörkum í þágu Reykjanesbæjar. Ég trúi því að með mannúð, jafnræði og raunhæfum lausnum sé hægt að byggja samfélag þar sem fleiri fá tækifæri til að blómstra í verki, ekki aðeins í orðum.

Aðalheiður Hilmarsdóttir,
frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar