Miðflokkurinn í Reykjanesbæ
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ

Íþróttir

Víkingar sóttu þrjú stig til Keflavíkur í jöfnum leik
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 3. maí 2026 kl. 20:50

Víkingar sóttu þrjú stig til Keflavíkur í jöfnum leik

Íslandsmeistarar Víkinga sóttu þrjú stig til Keflavíkur og unnu heimamenn 1-3 í leik liðanna í fimmtu umferð Bestu deildar karla knattspyrnu í kvöld.

Keflvíkingar gáfu Víkingum ekkert eftir í leiknum og tveggja marka sigur gefur ekki rétta mynd af honum. Víkingar náðu forystu eftir hornspyrnu á 20. mínútu þegar Gunnar Vatnhamar skoraði með skalla eftir hornspyrnu.

Keflvíkingar svöruðu fyrir sig á aðeins þrettán mínútum síðar, og skoruðu einnig eftir hornspyrnu. Boltinn endaði í markinu og síðustu snertingu átti Marin Brigic áður en boltinn endaði í marki Stjörnunnar eftir mikla þvögu.

Aðalbros
Aðalbros

1-1 í hálfleik en það voru heimamenn sem komu öflugir inn í seinni hálfleik og voru sterkari aðilinn og meira með boltann. Á 61. mínútu vildu Keflvíkingar fá vítaspyrnu þegar Stefán Ljúbicic féll í vítateig Víkinga eftir að Gunnar markaskorari Víkinga ýtti við honum. En dómarinn var á öðru máli. Víkingar náðu að komast meira inn í leikinn og uppskáru mark á 78. mínútu. Keflvíkingar voru nálægt því að jafna skömmu síðar en boltinn vildi ekki inn. Þeir vildu síðan fá vítaspyrnu þegar brotið var á Eið Orra og var Haraldur Guðmunsson, þjálfari Keflavíkur mjög ósáttur við að fá hana ekki. Á 90. mínútu fengu Keflvíkingar tvö dauðafæri en Víkingar björguðu á línu og Aron Snær markvörður varði flottan skalla frá Stefáni Ljúbicic. Víkingar kláruðu dæmið í jöfnum leik með þriðja markinu á annari mínútu uppbótartíma. Lokatölur 1-3.

„Ég var mjög ósáttur við að fá ekki víti þeir þeir brutu á Eið Orra þó hann væri ekki með boltann. Annars var þetta jafn leikur og við inni í honum allan tímann. Við náðum fínu spili og börðumst vel en úrslitin féllu ekki með okkur,“ sagði Haraldur Keflavíkurþjálfari í leikslok.

Keflvíkingar sækja Skagamenn heim í næsta leik.

Jöfnunarmark Keflavíkur kom eftir hornspyrnu. VF/pket.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar