Aðalbros
Aðalbros

Íþróttir

Ingólfur með þrennu í sigri Reynis
Laugardagur 2. maí 2026 kl. 20:52

Ingólfur með þrennu í sigri Reynis

Reynir Sandgerði byrjaði keppni í 3. deild karla með 3–1 sigri á Árbæ í Nettóhöllinni í dag. Ingólfur Sigurðsson var maður leiksins hjá Reyni og skoraði öll mörk heimamanna.

Reynismenn fengu óskabyrjun þegar Ingólfur kom þeim yfir strax á 7. mínútu. Hann var aftur á ferðinni á 30. mínútu þegar hann skoraði úr vítaspyrnu og kom Reyni í 2–0.

Aðalbros
Aðalbros

Árbær minnkaði muninn með marki Brynjars Óla Axelssonar en það dugði ekki til. Ingólfur fullkomnaði þrennuna á lokamínútu leiksins og tryggði Reyni öruggan 3–1 sigur í fyrstu umferð deildarinnar.

Reynir tekur því fyrstu þrjú stigin í sumar með sannfærandi heimasigri og Ingólfur Sigurðsson fer af stað með látum í markaskoruninni.


Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar