Tómas tryggði Þrótti dramatískan sigur á lokamínútunum
Það var mikil spenna í Vogunum í dag þegar Þróttur tók á móti Haukum í 2. deild karla. Svo fór að heimamenn fögnuðu dýrmætum þriggja stiga sigri eftir dramatískar lokamínútur.
Heimamenn mættu ákveðnir til leiks og þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta markinu. Strax á 8. mínútu kom Eiður Jack Erlingsson Þrótti yfir og staðan var 1-0 allt fram í síðari hálfleik.
Seint jöfnunarmark og dramatík í lokin
Haukar sóttu fast að jöfnunarmarki og það bar loks árangur á 77. mínútu þegar Einar Karl Ingvarsson kom boltanum í netið. Allt útlit var fyrir að liðin myndu skipta með sér stigunum, en Vogamenn voru ekki á þeim buxunum að gefast upp.
Þegar klukkan nálgaðist leikslok, nánar tiltekið á 89. mínútu, skoraði Tómas Þórðarson sigurmarkið við gífurlegan fögnuð viðstaddra. Þrjú stig í hús fyrir framan stútfulla stúku.
Hilmar Bragi var með myndavélina í Vogum í dag og smellti af myndunum sem sjá má hér að neðan í upphafi leiks.







