Langbest Sumardagurinn fyrsti
Langbest Sumardagurinn fyrsti

Íþróttir

Grindvíkingar einum sigri frá úrslitum eftir öruggan sigur á Val
Fimmtudagur 30. apríl 2026 kl. 22:17

Grindvíkingar einum sigri frá úrslitum eftir öruggan sigur á Val

Grindvíkingar sýndu mátt sinn og megin í HS Orku-höllinni í kvöld þegar þeir rúlluðu yfir Valsmenn, 93-67, í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Úrvalsdeildar karla. Með sigrinum tekur Grindavík 2-1 forystu í einvíginu og getur tryggt sér sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn með sigri að Hlíðarenda á mánudag.

Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og Kane opnaði leikinn með þrist. Ólafur Ólafsson gaf tóninn snemma, bæði í vörn og sókn, en hann var kominn með tíu stig strax í fyrsta leikhluta sem Grindavík vann 26-20.

Aðalbros
Aðalbros

Í öðrum leikhluta tókst Grindavík að halda lykilmönnum Vals í skefjum. DeAndre Kane lék frábæra vörn á Joshua Woods, sem átti erfitt uppdráttar og hitti illa. Staðan í hálfleik var 48-40, heimamönnum í vil.

Eftir hlé sýndu Grindvíkingar af hverju þeir eru til alls líklegir í vetur. Vörnin var ógnarsterk og Valsmenn fundu fá svör. Pargo og Kane settu niður mikilvægar körfur þegar Valur reyndi að sauma að þeim. Grindvíkingar mæta fullir sjálfstrausts í fjórða leikinn á mánudag þar sem sæti í úrslitum er í boði.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar