Keflavík í sumarfrí eftir stórt tap fyrir Haukum
Keflavíkurkonur verða að láta sér duga bikarmeistaratitil í ár en þær eiga ekki lengur möguleik á að verða Íslandsmeistarar eftir tap í fjórða leik gegn Haukum í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í Blue höllinni í kvöld. Keflavík sá í raun aldrei til sólar í leiknum eftir mjög slaka byrjun og töpuðu að lokum með tuttugu og sex stiga mun, 72-98.
Heimakonur voru í miklum vandræðum í fyrsta leikhluta og skoruðu einungis 11 stig gegn 23 Hauka. Þrátt fyrir eldræðu um „endukomu sögunnar“ í öðrum leikhluta, eins og Hörður Keflavíkurþjálfari orðaði það eftir leik - þá gerðist það ekki og í raun langt frá því. Keflavík skoraði aftur aðeins 11 stig og það þarf örugglega að fletta langt aftur í sögunni til að sjá svipaða frammistöðu hjá meistaraliði Keflavíkur, að flestra mati besta kvennaliði sögunnar.
Keflavík sýndi þó smá lit í þriðja leikhluta og minnkapi muninn í 15 stig minnst en Haukakonur voru alltaf með svör á reiðum höndum og svöruðu með þristum í andlitið á Keflvíkingum þannig að sigurinn var aldrei í hættu. Lokatölur 72-98.
Í öllum þessum vandræðum Keflvíkinga má ekki horfa framhjá því sem sérfræðingar Sýnar gerðu í spjalli eftir leik og ræddu ekki - að Keflavík missti sinn besta leikmann í vetur útaf snemma leiks. Keishana Washington hefur verið burðarás liðsins og það munar um minna þegar hún fer útaf en hún varð fyrir meiðslum og lék ekki nema um fjórðung liðsins og skoraði aðeins 4 stig. Sara Rún hélt uppi merkjum Keflavíkur eins og hægt var og systir hennar Bríet kom sterk inn þegar hún kom inn á. Verulega vantaði upp hjá öðrum leikmönnum. Í leik á móti svona sterku liði eins og Íslandsmeisturum Hauka þarf mjög góða frammistöðu og liðsheild til að leggja slíkt lið í einvígi í undanúrslitum.
Sérfræðingar Sýnar ræddu í setti þann möguleika að Sara Rún muni hugsanlega skipta um lið á næsta ári þar sem hún er flutt til Reykjavíkur og starfar þar. Einnig svaraði Hörður Axel þjálfari Keflavíkur því engu þegar hann var spurður að því hvort hann yrði áfram með liðið. Liðið varð bikarmeistari en það er annar tveggja stóru titlana. Þar fyrir utan var frammistaða liðsins ekki góð í vetur, í raun langt undir væntingum. Liðið endaði ekki í efstu fjórum sætunum í deildarkeppninni og náði sér aldrei á strik þar.
Haukar mæta annaðhvort Grindavík eða Njarðvík í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en Haukakonur hafa titil að verja.
Keflavík-Haukar 72-98 (11-23, 11-23, 31-25, 19-27)
Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 26/5 fráköst/6 stoðsendingar, Agnes María Svansdóttir 10, Thelma Dís Ágústsdóttir 8, Bríet Sif Hinriksdóttir 7, Anna Ingunn Svansdóttir 5/4 fráköst, Sofie Tryggedsson Preetzmann 5/7 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 4/4 fráköst, Keishana Washington 4/4 fráköst, Anna Lára Vignisdóttir 3, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Elva Björg Ragnarsdóttir 0, Angelina Turmel 0.
Haukar: Krystal-Jade Freeman 24/7 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 16/6 fráköst, Amandine Justine Toi 16/6 stoðsendingar, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 12/5 fráköst/8 stoðsendingar, Sólrún Inga Gísladóttir 10, Rósa Björk Pétursdóttir 7/6 fráköst, Þóra Kristín Jónsdóttir 6/4 fráköst/5 stoðsendingar, Lovísa Björt Henningsdóttir 4, Catherine Mosengo Masa 2/4 fráköst, Agnes Jónudóttir 1, Ísabella Fjeldsted Magnúsdóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Jón Þór Eyþórsson
Áhorfendur: 273
Viðureign: 1-3







