Aðalbros
Aðalbros

Viðskipti

Arion banki og Vörður opna útibú í Reykjanesbæ
Starfsfólk Arion banka og Varðar í Reykjanesbæ ásamt Einari Hannessyni, svæðisstjóra einstaklinga í Reykjanesbæ.
Þriðjudagur 5. maí 2026 kl. 09:56

Arion banki og Vörður opna útibú í Reykjanesbæ

Arion banki og Vörður opnuðu í dag nýtt útibú í Reykjanesbæ. Núverandi starfsemi Varðar í Krossmóa flyst í sameiginlegt húsnæði með Arion banka sem stendur við Aðalgötu 64 á Aðaltorgi. Svæðisstjóri er Einar Hannesson. Allt starfsfólk útibússins er búsett á svæðinu.  

Um er að ræða svokallað kjarnaútibú þar sem verður að finna fjölbreytta fjármála- og tryggingaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, segir í frétt frá fyrirtækjunum. Útibúið er staðsett í þjónustukjarna á fyrstu hæð og starfa þar ellefu manns til að byrja með. Opnunartími er kl. 9:00-16:00. Fólk á leið til útlanda getur keypt gjaldeyri hjá gjaldkera á opnunartíma útibúsins og eins verður þar gjaldeyrishraðbanki sem er opinn allan sólarhringinn. 

„Opnunin markar viss tímamót hjá Arion banka því að við höfum ekki opnað nýtt útibú í langan tíma, svo að þetta er virkilega spennandi verkefni. Þá á Vörður sér langa sögu í Reykjanesbæ, enda höfum við verið með útibú í þessu öfluga sveitarfélagi síðan 1999. Við ætlum að láta fjármál og trygginga vinna saman og styðja við uppbyggingu og kröftugt atvinnulíf. Hér er mikil gróska og með auknum umsvifum Arion opnast ennþá fleiri tækifæri. 

Aðalbros
Aðalbros

Við hlökkum til að taka á móti fólkinu á svæðinu og eiga góð samtöl um fjármál og tryggingar. Sjáumst á Aðaltorgi,“ segir Einar Hannesson, svæðisstjóri einstaklinga í Reykjanesbæ.

Aðgengi er einstaklega gott beint frá Reykjanesbraut og næg bílastæði verða fyrir utan útibúið.

Einar Hannesson, svæðisstjóri einstaklinga hjá Arion og Verði.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar