Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Fréttir

Tekist á um forgangsröðun hringtorga
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 12:19

Tekist á um forgangsröðun hringtorga

Mikilvægt skref var stigið í átt að bættu umferðaröryggi á Njarðarbraut þegar bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti forsendur fyrir nýju deiliskipulagi vegkaflans milli Fitja. Þótt allir séu sammála um mikilvægi framkvæmdanna greinir meirihluta og minnihluta á um hvar eigi að byrja.

Nýja skipulagið, sem byggir á greiningu sérfræðinga Eflu, gerir ráð fyrir fjórum nýjum hringtorgum á Njarðarbraut: við Víknaveg, Vallarás, Bergás og Grænás. Markmiðið er að greiða fyrir umferð og tryggja öryggi allra vegfarenda á þessum annasama kafla.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Meirihlutinn setur Bergás í fyrsta sæti

Meirihluti bæjarstjórnar ákvað að breyta forgangsröðun framkvæmda og setja hringtorg við Bergás í efsta sæti ásamt nýjum gönguleiðum. Með því á að bæta aðgengi íbúa í Ásahverfi að Njarðarbraut sem fyrst og tryggja örugga þverun yfir götuna.

„Við skuldum Ásahverfinu það að bregðast við fljótlega,“ sagði Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) í bókun meirihlutans. Hún benti á að hringtorgið við Bergás væri minni framkvæmd en sú við Grænás og gæti því hafist fyrr, jafnvel strax í sumar. Jafnframt er lagt til að sett verði hraðahindrun við Grænásbrekku til bráðabirgða þar til undirgöng verða tilbúin.

Sjálfstæðisflokkurinn vill byrja við Grænás

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðsluna. Þeir telja réttara að fylgja tillögu sérfræðinga Eflu sem settu hringtorg við Grænás/Njarðarbraut í fyrsta forgang. Flokkurinn lýsti yfir áhyggjum af því að íbúar í Ásahverfi þyrftu að bíða of lengi eftir varanlegum undirgöngum undir Grænásbrekku, sem áður hafði verið lofað að færu í gang.

„Hversu lengi eiga íbúar í Ásahverfi að bíða eftir undirgöngum undir Grænásbrekku?“ spurði Guðbergur Reynisson (D) í bókun minnihlutans og benti á að meirihlutinn virtist nú tala um undirgöng sem „fjarlæga framtíð“.

Tímaröð framkvæmda samkvæmt samþykkt meirihluta:

Bergás: Hringtorg og gönguleiðir við Fitjabakka (Hefst sem fyrst).

Grænásvegur: Hringtorg og undirgöng í Grænásbrekku.

Víknavegur: Hringtorg.

Vallarás: Hringtorg.

Bolafótur/Sjávargata: Breyting í „hægri inn / hægri út“.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar