Lífsgæði á öllum ævistigum
Það má með sanni segja að eldri borgarar hafa byggt upp samfélagið. Þeir búa yfir dýrmætri reynslu, þekkingu og lífssýn sem á að njóta sín í daglegu lífi bæjarins og því má ekki gleyma.
Samt sem áður stendur stór hópur frammi fyrir einni alvarlegustu áskorun samtímans, félagslegri einangrun og einmanaleika. Þegar fólk hættir á vinnumarkaði eða missir maka getur tengslanetið veikst hratt sem er alls ekki ásættanlegt.
Framsókn vill efla samfélag eldri borgara í Reykjanesbæ þar sem virkni, þátttaka og vellíðan eru í forgrunni. Við ætlum í sókn með markvissum aðgerðum sem styrkja félagsleg tengsl og skapa fleiri tækifæri til þátttöku. Lykilverkefnið er uppbygging öflugrar tómstundamiðstöðvar fyrir eldra fólk, lifandi miðpunktur þar sem fólk kemur saman, lærir, hreyfir sig og nýtur samveru.
Slík miðstöð getur hæglega verið lífsbjörg og einn mikilvægasti þáttur í lífi eldri borgara. Þar sem boðið yrði upp á fjölbreytt námskeið, menningarstarf, heilsueflingu og skipulagða viðburði allt árið um kring. Með því að efla núverandi starfsemi, meðal annars á Nesvöllum, í Virkjun á Ásbrú, Reykjaneshöll og Íþróttaakademíu, og tengja hana betur saman, getum við aukið aðgengi og þátttöku. Markmiðið er að öll finni sér tómstundir og félagsskap við hæfi.
Framsókn leggur einnig áherslu á að raddir eldri borgara heyrist skýrt í stefnumótun bæjarins. Þeir eiga að hafa raunveruleg áhrif á það hvernig þjónusta og starfsemi er mótuð. Með auknu samráði tryggjum við að úrræði endurspegli þarfir, áhuga og fjölbreytileika þessa stóra hóps.
Félagsleg tengsl eru grunnforsenda heilsu og lífsgæða. Rannsóknir sýna að virk þátttaka og samvera draga úr líkum á heilsufarsvanda, bæði andlegum og líkamlegum. Þess vegna er þetta ekki aðeins velferðarmál heldur fjárfesting í sterkari og heilbrigðari samfélagi.
Með skýrri sýn og markvissum aðgerðum getur Reykjanesbær haldið áfram að vaxa sem fyrirmyndarbær þar sem eldri borgarar lifa virku, innihaldsríku og tengdu lífi. Framsókn er tilbúin að leiða þá vegferð með virðingu, metnaði og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.
Gunnar Jón Ólafsson,
skipar 7. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ í sveitastjórnarkosningum 16. maí nk.









