Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí

Aðsent

Opið bréf  til frambjóðenda í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 7. maí 2026 kl. 09:56

Opið bréf til frambjóðenda í Reykjanesbæ

Hér eru nokkrar spurningar sem mig langar að fá svör við frá frambjóðendum til sveitarstjórnar hér í Reykjanesbæ. Þetta eru mál sem skipta ekki aðeins mig máli, heldur líka fjölmarga aðra og tengjast börnum, fötluðum, námsmönnum og æskulýðsstarfi. Ég á erfitt með að gera upp hug minn fyrir kosningarnar og því þætti mér gott að fá skýr svör:

1. Leik- og grunnskólamál

Hvaða áætlanir hafið þið þegar kemur að leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ? Hvernig ætlið þið að bæta aðstöðu, þjónustu og umhverfi barna og starfsfólks?

Aðalbros
Aðalbros
2. Málefni fatlaðra og langveikra

Mig langar sérstaklega að heyra hver stefna ykkar er í málefnum fatlaðra og langveikra, sérstaklega þeirra sem eru með lágar til miðlungs stuðningsþarfir. Það er alltof algengt að þessi hópur falli á milli kerfa og fái ekki þann stuðning sem þarf. Hvað ætlið þið að gera í því?

3. Atvinna fyrir ungt fólk

Ég á yngri bróður (f. 2008) sem hefur verið duglegur að sækja um sumarstörf hér í bænum en fær annaðhvort ekkert svar eða þau svör að hann skorti reynslu. Nú stefnir hann á að fara úr bænum í sumar til að vinna – og hann er ekki einn um það. Margir jafnaldrar hans eru í sömu stöðu.

Hvað ætlið þið að gera til að fjölga atvinnutækifærum fyrir ungt fólk hér í Reykjanesbæ?

4. Aðstaða fyrir námsmenn

Það vantar betri aðstöðu fyrir námsmenn í bænum. Bókasafnið er gott út af fyrir sig en þar er oft mikill hávaði og það vantar lesaðstöðu þar sem fólk getur setið í ró og næði og lært. Sérstaklega þar sem bókasafnið er í sama húsi og tónlistarskólinn.

Er einhver vilji til að bæta námsaðstöðu fyrir ungt fólk sem sækir háskóla- eða framhaldsnám? Eða eigum við bara að halda áfram að sækja þessa þjónustu annað?

5. Stuðningur við æskulýðsstarf í bænum (sérstaklega skátastarfið)

Skátafélagið Heiðabúar verður 90 ára á næsta ári. Skátastarfið hefur í áratugi verið stór hluti af bæjarlífinu, skapað heilbrigt og uppbyggilegt umhverfi fyrir börn og ungmenni og tekið stóran þátt í viðburðum og samfélagsstarfi í bænum.

Samt hef ég ítrekað upplifað að framlag skátanna sé vanmetið eða jafnvel gleymist. Það er miður, sérstaklega þegar litið er til þess hversu stóran þátt skátastarfið hefur átt í því að móta samfélagið okkar. Skátastarf er líka einn af fáum stöðum þar sem öll fá raunverulega pláss óháð bakgrunni, greiningum, kynhneigð eða öðru. Þar fá börn og ungmenni tækifæri til að blómstra.

Ég tek fram að við í Heiðabúum erum þakklát fyrir þann stuðning sem félagið hefur fengið en það mætti passa upp á að gleyma okkur ekki þegar við komum að því að skipuleggja viðburði en þess er sjaldan getið. Það er auglýsing fyrir skátastarfið að okkar sé getið varðandi þá viðburði sem við raunverulega tökum þátt í.

Hvað eruð þið tilbúin að gera til að styðja betur við æskulýðsstarf í Reykjanesbæ – þar á meðal skátastarfið?

Með fyrirfram þökkum fyrir svör sem hjálpa mér og öðrum í svipaðri stöðu að taka ákvörðun um hvar við eigum að setja X á kjörseðilinn 16. maí.

María Mist Þórs S.

Höfundur er nemi, skáti, móðir tveggja ungra barna og kjósandi í Reykjanesbæ.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar