Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí

Aðsent

Heilbrigðiseftirlitslaus fiskvinnsla
Fimmtudagur 7. maí 2026 kl. 06:36

Heilbrigðiseftirlitslaus fiskvinnsla

Við Brekkustíg 22 í Njarðvík starfar fiskvinnslan Premium of Iceland og hefur gert um nokkurra ára skeið. Umgengni í og við húsið hefur lengi verið ábótavant og oft á tíðum til verulegrar óprýði fyrir nærumhverfið.

Í vindasömum veðrum hefur borið á því að umbúðir og annað rusl fjúki frá svæðinu, dreifist um hverfið og endi gjarnan í görðum nágranna, jafnvel langt frá upprunastað eftir styrk og átt vinds. Þá hefur ítrekað orðið vart við leka á fiskblönduðu vatni frá húsinu og út á götu, sem hefur í för með sér óþef og laðar að fugla, einkum máva, auk annarra meindýra sem setjast þar að.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Undirritaður, ásamt fleiri íbúum að því er best er vitað, hefur ítrekað sent kvartanir til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja á undanförnum árum, án þess að svör bærust fyrr en nýverið. Samkvæmt upplýsingum frá Ásmundi Þorkelssyni framkvæmdastjóra HES kom þá fram að umrædd starfsemi væri ekki með, og hefði aldrei haft, starfsleyfi frá eftirlitinu.

Þegar óskað var eftir frekari skýringum á málinu kom fram að það væri „langt og flókið“ af hálfu eftirlitsins, án þess að nánari útskýringar fengjust. Þetta vekur sérstaka athygli í ljósi þess að samkvæmt HES sjálfu er „starfsemin skráningarskyld í samræmi við reglugerð nr. 830/2022“.

Af framangreindu verður ekki annað ráðið en að eftirlitið hafi brugðist hlutverki sínu. Þá hefur þeirri beiðni verið hafnað að starfsemi fyrirtækisins verði stöðvuð tímabundið þar til tilskilin leyfi liggja fyrir og umgengni hefur verið bætt þannig að hún standist eðlilegar kröfur. Slík staða er óásættanleg og ætti ekki að bitna á nágrönnum með þessum hætti.

Að mati undirritaðs er þetta áfellisdómur á Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og ber vott um alvarlegt aðgerðarleysi af hálfu stjórnenda þess.

Ólafur Gunnarsson

Höfundur er íbúi við Brekkustíg í Njarðvík

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar