Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Fjárfestum í geðheilsu
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 09:44

Fjárfestum í geðheilsu

Engin fjárfesting skilar meiri ávinningi en fjárfesting í geðheilsu barna og ungmenna.

Við sjáum birtingarmyndir aukinna áskorana og vitum að líðan hefur bein áhrif á námsárangur, félagsfærni og framtíðarmöguleika. Sveitarfélagið getur ekki leyst allan vanda eitt og sér, en það getur skapað umhverfi þar sem börn og ungmenni fá stuðning, öryggi og tækifæri til að blómstra.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Við þurfum að styrkja forvarnir í skólum, bæta aðgengi að ráðgjöf og tryggja betur samstarf milli skóla, velferðarþjónustu og heilsugæslu. Þjónustan þarf að vera sýnileg, aðgengileg og án langra biðlista, til dæmis í formi skólafélagsráðgjafa, því þegar börn og fjölskyldur leita sér hjálpar þarf hún að vera til staðar strax. Snemmtæk íhlutun skiptir nefnilega sköpum, hún dregur úr alvarlegri vanda síðar og er jafnframt skynsamleg fjárfesting fyrir samfélagið til lengri tíma.

Framsókn hefur unnið markvisst að þessum málaflokki og komið að uppbyggingu úrræða á svæðinu, meðal annars með því að koma Hlýjunni ráðgjafaþjónustu fyrir ungmenni 13–18 ára í Reykjanesbæ á laggirnar ásamt fleira góðu fólki. Sú reynsla hefur sýnt hversu mikilvægt er að þjónustan sé aðgengileg, snemmtæk og sniðin að raunverulegum þörfum barna og fjölskyldna.

Framsókn mun beita sér fyrir því að stytta biðlista eftir geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni, efla snemmtæka íhlutun og ráðgjöf innan skólakerfisins og styrkja samstarf skóla, velferðarþjónustu og heilsugæslu svo börn og fjölskyldur falli ekki á milli kerfa. Ný farsældarlög styðja við þessar áherslur, þar sem aukið svigrúm, stuðningur og heildræn samþætting á málefnum barna og ungmenna eru meginstoðir. 

Samfélag sem fjárfestir í geðheilsu er samfélag sem horfir til framtíðar. Við í Framsókn viljum að Reykjanesbær verði leiðandi í geðheilbrigðismálum og snemmtækri íhlutun, því sterk geðheilsa er grunnur að sterku og heilbrigðu samfélagi.

Díana Hilmarsdóttir,
skipar 3. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar