Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Afkoman versnar í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 09:46

Afkoman versnar í Reykjanesbæ

Eftir skoðun á ársreikningi Reykjanesbæjar fyrir árið 2025 blasir við þróun milli ára sem við getum ekki litið fram hjá. Skuldir bæjarsjóðs hafa hækkað um tæplega 5 milljarða króna á einu ári eða um nærri 15%. Á sama tíma þegar tekjur aukast aðeins um 2,5% er rekstrarkostnaður að vaxa meira en tvöfalt hraðar, eða um 5,1%.

Þetta þýðir einfaldlega að reksturinn er að veikjast.

Aðalbros
Aðalbros

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir hefur dregist saman um rúmlega 20% milli ára eða rúmlega 576 milljónir. Það er ekki bókhaldsatriði, þetta er mælikvarði á getu bæjarins til að standa undir skuldbindingum sínum og fjárfesta í framtíðinni.

Ef þessi þróun heldur áfram þrengist svigrúmið til að halda niðri álögum á heimilin, til að fjárfesta í grunnþjónustu og til að byggja upp bæinn af ábyrgð. 

Þó að auknar skuldir séu ekki óeðlilegar í ljósi umfangsmikilla framkvæmda og uppbyggingar á undanförnum árum, er lykilatriði að rekstrargrundvöllur sveitarfélagsins haldist traustur. Nauðsynlegt er að grípa til aðgerða sem miða að auknum tekjum og aukinni hagræðingu í rekstri til að styrkja rekstrarhagnað og tryggja sjálfbærni til lengri tíma.

Nú viljum við sjálfstæðismenn taka skýr skref til að taka til í rekstri bæjarins. 

Við ætlum að auka tekjugrunn bæjarins með öflugu atvinnulífi, setja skýrari áherslur í rekstri, ná fram hagræðingu og tryggja að hver króna sé nýtt betur

Við eigum ekki að sætta okkur við að kostnaður vaxi hraðar en tekjur. Við eigum ekki að sætta okkur við að reksturinn veikist á sama tíma og álag á íbúa eykst.

Reykjanesbær á að vera rekinn af ábyrgð fyrir fólkið sem býr hér í dag og fyrir komandi kynslóðir.

Það er verkefnið fram undan.


Kristján Pétur Kristjánsson

Höfundur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar