Landsbankinn - 12. maí
Landsbankinn - 12. maí

Aðsent

Mikilvægasta fólkið
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 09:52

Mikilvægasta fólkið

Í kosningabaráttunni þessa dagana ræða framboð víða um land ólíkar „leiðir“ og „módel“ í leikskólamálum. Umræðan snýst oft fyrst og fremst um að tryggja leikskólapláss og stytta biðlista. Hér í Suðurnesjabæ er staðan nokkuð góð miðað við að börn fá almennt inngöngu frá 18 mánaða aldri. Þó myndast biðlistar og sum börn komast ekki inn fyrr en um tveggja ára aldur. Þar sem fæðingarorlof er 12 mánuðir myndast því bil sem oft þarf að brúa með dagforeldri.

Leikskólastarfið er öflugt og starfsfólkið frábært. Það breytir þó ekki því að bæta má umgjörð málaflokksins í heild og styrkja hann til framtíðar.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Nýlega rakst ég á slagorð fyrirtækisins Skólamatur: „fyrir mikilvægasta fólkið“. Það á vel við í þessari umræðu því börnin okkar eru einmitt það, mikilvægasta fólkið. Samt er staðan sú að kostnaður við að eiga börn á leikskólaaldri er verulega hár. Þegar barn fer í grunnskóla falla niður skólagjöld, skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar og skólagögn einnig. Á leikskólastigi þurfa foreldrar hins vegar að greiða meðal annars fyrir vistun, fæði og bleyjur.

Þetta skapar ósanngjarnt bil. Foreldrar ungra barna eru oft á sama tíma að fóta sig á vinnumarkaði, fjárfesta í húsnæði og byggja upp sitt líf. Því þarf að draga úr þessum fjárhagslega mun milli leikskóla- og grunnskólaáranna. Af þeirri ástæðu leggur S-listinn áherslu á leikskólamálin í komandi sveitarstjórnarkosningum, ásamt því að bæta stöðu þeirra foreldra sem reiða sig á dagforeldra.

Leikskólamál snúast þó um meira en aðgengi, þau snúast einnig um kostnað. Í dag greiða foreldrar talsverðan hluta af þjónustunni. Full vistun kostar til dæmis um 50.800 krónur á mánuði. Veittur er 50% systkinaafsláttur af vistunargjaldi, en greiða þarf fullt fæðigjald.

Þrátt fyrir afsláttarkerfið getur heildarkostnaður orðið mjög hár, sérstaklega þegar börn komast ekki strax inn á leikskóla að loknu fæðingarorlofi og foreldrar þurfa að nýta þjónustu dagforeldra. Sem foreldri í þeirri stöðu sé ég fram á að greiða 121.000 kr á mánuði fyrir vistun tveggja barna minna. Þetta er staða sem margir aðrir þekkja og sumir hverjir standa jafnvel frammi fyrir mun hærri kostnaði.

Leikskólinn á að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélagsins og kostnaður við hann þarf að vera hóflegur. Þess vegna vill S-listinn setja skýrari ramma utan um gjaldtökuna. Við leggjum til að leikskólagjöld fari ekki yfir 50.000 krónur fyrir fulla vistun og að systkinaafsláttur verði 100%. Einnig ætlum við að hækka greiðslur vegna dagvistunar hjá dagforeldrum.

Leikskólinn er fyrsta skólastig barnanna og gegnir lykilhlutverki í þroska þeirra og vellíðan. Þar leggst grunnurinn að námi og félagsfærni. Starfsfólk leikskóla sinnir afar mikilvægu hlutverki á hverjum degi. Þetta þekki ég vel af eigin raun eftir að hafa starfað við bæði leik- og grunnskóla í Suðurnesjabæ og hef nýtt þessa mikilvægu þjónustu fyrir mín eigin börn. 

S-listi Samfylkingarinnar og óháðra í Suðurnesjabæ ætlar að styðja við fagfólkið, tryggja því gott starfsumhverfi og skapa aðstæður þar sem bæði börn og starfsfólk blómstra. Það gerum við með því að hlusta á reynslu þeirra sem starfa í leikskólunum og eiga raunverulegt samtal á vettvangi.

Markmið okkar er skýrt: að tryggja öllum börnum jafnt aðgengi að sínu fyrsta skólastigi og að Suðurnesjabær verði samfélag þar sem fjölskyldur finna fyrir öryggi og stuðningi. Með því styrkjum við snemmtæka íhlutun, bætum líðan barna og leggjum traustan grunn að framtíð þeirra.

Við óskum eftir þínum stuðningi við að láta þetta verða að veruleika. Setjum x við S þann 16. Maí.

Bára Kristín Þórisdóttir
skipar 6. sæti lista Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar