Enn eru skýr merki um aflögun við Svartsengi og landris heldur áfram
Enn eru skýr merki um aflögun við Svartsengi og landris heldur áfram. Aflögun nemur áfram um 2 cm á mánuði og er þróunin stöðug. Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi mælast með svipuðu sniði og síðustu vikur. Samkvæmt líkanreikningum hafa tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst, 16. júlí í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofu Íslands.
Myndin sýnir kvikusöfnunartímabil á Sundhnúksgígaröðinni frá því í október 2023. Frá því í mars 2024 fram að eldgosinu í júlí 2025 höfðu kvikusöfnunartímabilin verið að lengjast. 280 dagar eru liðnir frá lokum goss þann 5. ágúst 2025.

Samanburður á reiknuðu rúmmáli kviku sem hefur safnast undir Svartsengi milli eldgosa frá nóvember 2023. Rauða súlan sýnir núverandi kvikusöfnunartímabil, frá 17. júlí 2025 til 10. maí 2026.
Jarðskjálftavirkni
Lítil smáskjálftavirkni mælist við Grindavík og á Sundhnúksgígaröðinni, líkt og undanfarna mánuði. Stærsti skjálfti síðustu vikna mældist 1,2 að stærð þann 11. maí milli Þorbjörns og Grindavíkur.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni.










