Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Aðsent

Hvaða lausnir sjá stjórnmálaflokkarnir í Reykjanesbæ fyrir sér í málefnum fatlaðra barna?
Miðvikudagur 13. maí 2026 kl. 15:49

Hvaða lausnir sjá stjórnmálaflokkarnir í Reykjanesbæ fyrir sér í málefnum fatlaðra barna?

Sú litla umræða sem ég hef séð snýst að mestu um vilja til að gera betur, en skortur er á raunverulegum lausnum og skýrri framtíðarsýn.

Hvað stendur til að gera varðandi skammtímavistun fatlaðra barna? Hvernig á að stytta langan biðlista á Heiðarholti?

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Af hverju er ekkert úrræði fyrir fötluð börn í ágúst fram að skólabyrjun, þrátt fyrir að lög kveði skýrt á um slíka þjónustu? Hvernig ætla stjórnvöld að bregðast við þeirri stöðu?

Af hverju er bið eftir athugunum sérfræðinga orðin meira en ár í leikskólum og allt að tvö ár í grunnskólum? Hvaða aðgerðir standa til að stytta þann biðtíma?

Á að fjölga sérhæfðum námsúrræðum þegar mörg börn fá synjun á hverju ári þrátt fyrir augljósa og mikla þörf?

Í stefnu Reykjanesbæjar til ársins 2030 kemur skýrt fram að börnin séu mikilvægust. Raunveruleikinn er hins vegar sá að ekki njóta öll börn þeirrar forgangsröðunar nema breytingar verði á kerfinu.

Þrátt fyrir þessar brotalamir er mikilvægt að nefna það sem vel er gert. Sem móðir fatlaðs barns hef ég mætt skilningi, umhyggju og virðingu frá starfsfólki Stapaskóla, bæði í leik- og grunnskólanum. Skólastjóri Myllubakkaskóla hefur einnig reynst okkur afar vel en drengurinn okkar byrjar í Viðju í haust.

Nemendaverndarráð leik- og grunnskóla Stapaskóla hafa reynst okkur mjög vel og þar starfar fólk sem fær alltof sjaldan að heyra hversu mikilvægt starf þess er. Félagsráðgjafar Reykjanesbæjar hafa einnig staðið sig frábærlega og ráðgjafaþroskaþjálfi bæjarins á sérstakt hrós skilið. Þá er hópastarfið hjá Reykjanesbæ bæði með frábæra aðstöðu og gott starfsfólk.

Þetta sýnir að Reykjanesbær getur staðið sig mjög vel í málefnum fatlaðra barna — en það þarf að gera betur á ákveðnum sviðum.

Foreldrar fatlaðra barna eiga ekki að þurfa að lifa í endalausri óvissu eða festast árum saman á biðlistum.

Kara Tryggvadóttir

Móðir fatlaðs barns, leikskólakennari og sérkennslustjóri.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar