Aðsent

Bætum ímynd Reykjanesbæjar og eflum viðburði fyrir öll
Miðvikudagur 13. maí 2026 kl. 13:56

Bætum ímynd Reykjanesbæjar og eflum viðburði fyrir öll

Reykjanesbær er fjölbreyttur og ört vaxandi bær þar sem finna má fólk af ýmsum toga, sumir hafa búið hér alla sína tíð meðan aðrir eru tiltölulega nýfluttir til okkar. Það skiptir máli að allir íbúar fái tækifæri til þátttöku í samfélaginu okkar og geti notið sín. 

Það þarf að bæta ímynd og sýnileika Reykjanesbæjar og efla markaðssetningu bæjarins, bæði sem áfangastaðar og heimabæjar. Við eigum að vera stolt af því sem vel er gert og duglegri að segja frá því.

Aðalbros
Aðalbros

Viðburðir, menning og afþreying skipta okkur máli því þá fáum við tækifæri til þess að tengjast og skapa saman minningar. 

Það er mikilvægt að auka aðgengi að húsnæði bæjarins til afþreyingar, menningar og sköpunar. Þessi skref langar okkur að stíga með hag allra íbúa bæjarins að leiðarljósi. Við viljum leggja meiri áherslu á stuðning við þá menningarhópa sem eru nú þegar starfandi og veita nýjum hópum svigrúm til að festa rætur. 

Mín draumsýn er að búa til aðstæður þar sem minni viðburðir sem brjóta upp hversdaginn standi fjölskyldum til boða allt árið. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa komið að skipulagningu flestra menningaratburða bæjarins okkar undanfarin ár og ég veit að með samstilltu átaki getur okkur tekist að gera gott svo miklu betra. 

Við búum í frábæru samfélagi sem við eigum að vera stolt af. Við í Framsókn viljum að íbúar hafi meira við að vera í hversdagsleikanum í Reykjanesbæ. Að hér skapist fleiri tækifæri til samveru, menningar, sköpunar og gleði ekki bara á stórum hátíðum, heldur allt árið um kring í öllum veðrum.

Halla Karen Guðjónsdóttir,
skipar 5. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar