Landsbankinn - 12. maí
Landsbankinn - 12. maí

Fréttir

Njarðvíkingur tekur við stjórnartaumunum hjá Íslenskri erfðagreiningu
Daníel Fannar Guðbjartsson, nýr forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Miðvikudagur 13. maí 2026 kl. 17:10

Njarðvíkingur tekur við stjórnartaumunum hjá Íslenskri erfðagreiningu

Daníel Fannar Guðbjartsson hefur verið ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE). Hann tekur við starfinu á spennandi tímum mikilla tækniframfara, en rúmt ár er liðið frá því að Kári Stefánsson lét af störfum.

Íslensk erfðagreining greindi frá því í morgun að Daníel Fannar Guðbjartsson, sem starfað hefur hjá fyrirtækinu í tæpa þrjá áratugi, muni leiða áframhaldandi uppbyggingu þess. Með ráðningunni stefnir móðurfélagið Amgen að því að treysta enn frekar stöðu ÍE sem einnar fremstu rannsóknarmiðstöðvar heims á sviði erfðafræði.

Aðalbros
Aðalbros
Lykilmaður í tæp 30 ár

Daníel er enginn nýliði innan veggja fyrirtækisins í Vatnsmýrinni. Hann hóf störf hjá ÍE árið 1998 og hefur upp frá því verið einn af hornsteinum vísindastarfsins. Hann gegndi áður stöðu yfirmanns tölfræðigreiningar og var skipaður yfirvísindamaður (Chief Scientist) á síðasta ári.

„Ég hef fengið tækifæri til að vaxa og þróast með Íslenskri erfðagreiningu í tæpa þrjá áratugi og hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk,“ segir Daníel í tilkynningu.

Hann bendir á að við lifum nú tíma mikilla framfara, sérstaklega á sviði gervigreindar, sem muni nýtast til að dýpka skilning á meinafræði sjúkdóma.

Tekur við eftir Kára

Ráðning Daníels markar ákveðin tímamót, en rúmlega ár er síðan Kára Stefánssyni, stofnanda og langtímaforstjóra ÍE, var sagt upp störfum. Síðan þá hafa Unnur Þorsteinsdóttir og Patrick Sulem stýrt starfseminni tímabundið, en nú er ljóst að það verður Njarðvíkingurinn Daníel sem mun leiða vísindastarfið inn í framtíðina.

Daníel hefur í gegnum tíðina átt ríkan þátt í að hanna þá aðferðafræði sem gerir Íslenska erfðagreiningu einstaka á heimsvísu og hefur jafnframt verið ötull leiðbeinandi ungra vísindamanna.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar