COWI metur aðstæður í Grindavík: Leit með myndavélum talin fyrsta skrefið
Nýtt mat verkfræðistofunnar COWI á aðstæðum við Vesturhóp í Grindavík liggur nú fyrir. Niðurstaðan er að halda skuli áfram leit að Lúðvík Péturssyni með fyllstu gát og í afmörkuðum áföngum. Mælt er með því að byrjað verði á ítarlegri leit með rústamyndavélum áður en frekari ákvarðanir verða teknar.
Verkfræðistofan COWI vann skýrsluna að beiðni Grindavíkurnefndar til að leggja sjálfstætt mat á hvort og hvernig væri hægt að framkvæma leit að Lúðvík Péturssyni með öruggum hætti. Lúðvík féll ofan í sprungu við Vesturhóp 29 þann 10. janúar 2024 við vinnu við sprungufyllingar.
Krefjandi og hættulegar aðstæður
Í matinu kemur fram að aðstæður á slysstað séu afar erfiðar. Sprungan er þröng og dýpi niður á grunnvatn er um 17 metrar, en sprungan er talin talsvert dýpri neðan vatnsborðs. Helstu áhættuþættir sem nefndir eru:
- Hrunhætta: Hætta er á að efni hrynji bæði frá yfirborði og úr bergveggjum.
- Hreyfingar á haug: Hrunhaugurinn neðst í sprungunni er óstöðugur og getur skriðið til.
- Náttúruöfl: Svæðið er virkt eldsumbrotasvæði þar sem jarðskjálftar geta átt sér stað.
- Gas: Hætta er á gasmengun eða köfnunarhættu niðri í sprungunni.
Lagt til að leitað verði í áföngum
COWI telur ekki rétt á þessu stigi að fara í stórtækar aðgerðir, svo sem að fleyga eða sprengja stærra op, þar sem slíkt gæti valdið því að jarðneskar leifar færðust neðar í sprunguna. Þess í stað er lagt til að leitinni verði skipt í áfanga:
- Fyrsti áfangi: Notkun rústamyndavéla til að rýna inn í glufur í hrunhaugnum og kortleggja hann eins og frekast er unnt.
- Endurmat: Að loknum fyrsta áfanga verði tekin ákvörðun um framhaldið byggt á því sem finnst.
- Hreyfing á efni: Ef leitað er áfram, verði efni aðeins fært til með handafli eða léttum verkfærum í fyrstu.
Strangar öryggiskröfur
Í skýrslunni er skýrt tekið fram að aðstæður uppfylli ekki kröfur Vinnueftirlitsins um vinnu undir bröttum bergveggjum. Því verði verkið að vera í höndum þjálfaðra sérfræðinga með viðeigandi búnað. Lagt er til að við leitina verði þrír sigmenn og einn stjórnandi, þar sem tveir sigmenn fara að hámarki niður í einu á meðan stjórnandi fylgist með af yfirborði.
Niðurstaða verkfræðinganna er skýr: Hvert skref verður að áhættugreina sérstaklega og ef metin áhætta er óásættanleg skuli hætt við frekari aðgerðir.








