Metár í rekstri Sveitarfélagsins Voga
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025 við síðari umræðu. Niðurstaða ársins sýnir afar sterka fjárhagsstöðu og er um að ræða bestu rekstrarniðurstöðu í sögu sveitarfélagsins, ef undanskilið er árið 2007 þegar eignarhlutur í Hitaveitu Suðurnesja var seldur.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta nam 351 milljón króna, sem er tæpum 200 milljónum króna umfram áætlun. Þar af var rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 290 milljónir króna. Heildartekjur samstæðunnar námu tæpum þremur milljörðum króna á árinu.
Ör íbúafjölgun einkennir sveitarfélagið en íbúum fjölgaði um 9% á síðasta ári og hefur fjölgað um 45% á yfirstandandi kjörtímabili. Samhliða þessari fjölgun hefur talsverðri skilvirkni verið náð í rekstri og sýna lykiltölur að launakostnaðarhlutfall og rekstrarkostnaðarhlutfall hafa lækkað á milli ára.
Fjárhagsleg staða Voga hefur styrkst verulega. Veltufé frá rekstri nam 533 milljónum króna og var engin þörf á nýjum lántökum á árinu, þrátt fyrir að gert hefði verið ráð fyrir því í áætlunum. Þá hefur skuldaviðmið sveitarfélagsins lækkað úr 58% í 38% á einu ári, sem gerir bæjarfélaginu kleift að halda áfram öflugri uppbyggingu innviða.
Í bókun bæjarstjórnar kemur fram að hún gangi stolt frá borði við lok kjörtímabilsins. Það verkefni að hagræða í rekstri og tryggja sjálfbærni hafi gengið eftir og er starfsfólki sveitarfélagsins þakkað fyrir þeirra framlag. Það er von fráfarandi bæjarstjórnar að sú sem við tekur haldi áfram á sömu braut, enda séu nú fleiri verkfæri til staðar til að byggja upp gott samfélag í Vogum á grunni mikils bata í rekstri.









