Oddvitasætið: Við þurfum meiri kraft í framkvæmdir
Suðurnesjabær hefur vaxið hratt á undanförnum árum og fólksfjölgunin kallar á öfluga innviði og skýra framtíðarsýn. Anton Guðmundsson, bæjarfulltrúi og oddviti B-lista Framsóknar og óháðra, segir að áhersla listans sé skýr: Praktískar lausnir og markviss uppbygging sem þjónar íbúunum í daglegu lífi.
Hvað telur þú vera stærsta kosningamálið í Suðurnesjabæ og hvers vegna?
„Stærsta kosningamálið í Suðurnesjabæ er hvernig við ætlum að byggja upp innviði sveitarfélagsins samhliða þeirri hröðu fólksfjölgun sem hefur átt sér stað undanfarin ár.
Á síðustu árum hefur Suðurnesjabær vaxið hratt og það hefur skapað aukinn þrýsting á skóla, íþróttamannvirki, gatnakerfi og aðra grunnþjónustu. Við þurfum því skýra sýn, markvissari ákvarðanatöku og meiri kraft í framkvæmdum.
Framsókn var í meirihluta fyrri hluta kjörtímabilsins og á þeim tíma var ráðist í mörg mikilvæg verkefni, meðal annars nýjan leikskóla, gjaldfrjálsar skólamáltíðir, aukið lóðaframboð og styrkingu íþrótta- og fjölskyldumála. Einnig tryggðum við heilbrigðisþjónustu í Suðurnesjabæ. Nú teljum við mikilvægt að halda áfram þeirri uppbyggingu af ábyrgð og skynsemi.
Við viljum meðal annars ráðast í uppbyggingu gervigrasvallar til að bæta aðstöðu barna og ungmenna til íþróttaiðkunar og skapa meira svigrúm fyrir innanhússíþróttir. Slík uppbygging þarf þó að byggjast á faglegum grunni og ábyrgri meðferð almannafjár, enda eru einnig fram undan stór verkefni í leikskóla-, skóla- og fráveitumálum.“
Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum – hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?
„Ef við ættum að nefna eitt mál sem yrði sett í forgang á fyrstu 100 dögunum þá væri það stórátak í lagfæringum og viðhaldi gatna í Suðurnesjabæ. Íbúar hafa lengi kallað eftir bættum innviðum og við viljum sjá sýnilegar framkvæmdir hefjast strax.
Íbúarnir munu finna fyrir því í daglegu lífi með öruggari og snyrtilegri götum, betra aðgengi og skýrari áherslu á fegrun og umhirðu bæjarins.“
Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í Suðurnesjabæ í þessum kosningum?
„Það sem skilur okkar framboð helst frá hinum er að við leggjum áherslu á praktískar lausnir, ábyrga uppbyggingu og skýra forgangsröðun í þeim málum sem snerta daglegt líf íbúa. Við viljum minna tal og meiri framkvæmdir.
Við leggjum sérstaka áherslu á innviði, fjölskyldumál, íþrótta- og tómstundastarf, atvinnuuppbyggingu og ábyrga fjármálastjórn. Þá viljum við vinna í nánu samstarfi við íbúa og samfélagið allt.
Við búum einnig yfir dýrmætri reynslu. Þeir sem skipa fyrsta og annað sæti listans eru báðir sitjandi bæjarfulltrúar og þekkja því vel rekstur sveitarfélagsins og samskipti við ríkisvaldið. Reynsla skiptir máli þegar taka þarf mikilvægar ákvarðanir fyrir framtíð sveitarfélagsins.“
Suðurnesjabær er sveitarfélag í örum vexti; hvernig ætlið þið að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?
„Suðurnesjabær er í hraðri uppbyggingu og íbúafjöldinn nálgast 4.500 manns. Það setur aukinn þrýsting á innviði og grunnþjónustu sveitarfélagsins.
Við teljum mikilvægt að fara markvisst yfir rekstur sveitarfélagsins og leita leiða til hagræðingar og betri nýtingar fjármagns áður en gripið er til þess ráðs að auka skatta á íbúa. Í dag er rekstrarkerfið orðið þungt á ákveðnum sviðum og þar þarf að ná fram meiri samlegð og skilvirkni.
Markmið okkar er að skapa meira svigrúm til framkvæmda í skólum, íþróttamannvirkjum og öðrum mikilvægum innviðum án þess að skuldsetja sveitarfélagið um of. Við teljum að þar skipti reynsla, ábyrg fjármálastjórn og skýr forgangsröðun sköpum.“








